Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12257
Áhrif efnaskipta og umhverfisþátta á þróun sykursýki af tegund 2 (SS2) voru könnuð í lýðgrunduðu íslensku þýði (einstaklingar fæddir 1907–1935, þátttakendur í Reykjavíkur- og Öldrunarrannsókn Hjartaverndar). Jafnframt voru breytingar á dánartíðni eldri einstaklinga með SS2 kannaðar fyrir tímabilið 1993-2004. Niðurstöður sýndu tengsl milli búsetu í uppvexti (sveit eða þéttbýli) og áhættu á að fá SS2 síðar á ævinni. Á miðjum aldri tengjast fjölskyldusaga um sykursýki, há gildi líkamsþyngdarstuðuls, þríglyceríða og systolísks blóðþrýstings aukinni áhættu á að fá SS2 á efri árum. Dánartíðni af völdum hjarta- og æðasjúkdóma lækkaði milli 1993 og 2004 hjá eldri einstaklingum með sykursýki samfara hagstæðri þróun áhættuþátta þessa sjúkdómaflokks meðal þjóðarinnar. Lækkun dánartíðni var hliðstæð hjá einstaklingum án SS2. Dánartíðni eldri einstaklinga með SS2 var lægri ef þeir notuðu statín lyf, óháð því hvort þeir voru með hjarta- og æðasjúkdóma eða voru á blóðsykurlækkandi lyfjum. Niðurstöðurnar styðja þá tilgátu að umhverfisáhrif frá unga aldri og fram eftir ævi hafi áhrif á myndun SS2 á síðari æviárum. Lækkun á dánartíðni má rekja m.a. til hagstæðari stöðu áhættuþátta hjarta- og æðasjúkdóma og til bættrar læknisþjónustu. Þar sem algengi SS2 í yngri aldurshópum er stöðugt að aukast er mikilvægt að styrkja forvarnir og fylgja klínískum leiðbeiningum við meðferð á SS2.
Metabolic and environmental factors associated with the development of type 2 diabetes (T2D) later in life were studied in a population based cohort, in participants born 1907–1935. Urban residency versus rural in early life, family history of diabetes, high levels of body mass index, triglycerides and systolic blood pressure in midlife were associated with increased risk of T2D in late life. A decrease in cardiovascular risk factor levels between 1993 and 2004 led to improved life expectancy both in those with and without diabetes. Statin use, irrespective of glucose-lowering and antihypertensive medication, markedly reduced the difference in the mortality rate between older persons with T2D and those without diabetes. Our data support the hypothesis that environmental and metabolic conditions from an early age affect the development of T2D later in life. As T2D is on the rise in younger age groups, primary as well as secondary prevention should be accentuated.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
EO_PhD_thesis_online.pdf | 1.01 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |