is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Rafræn tímarit > Stjórnmál og stjórnsýsla >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12294

Titill: 
  • Stefnumótun og áætlanagerð ráðuneyta. Leiðir að einföldun og samhæfingu
Útgáfa: 
  • Júní 2012
Útdráttur: 
  • Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs setti sér það verkefni í samstarfsyfirlýsingu árið 2009 að vinna að 20/20 Sóknaráætlun fyrir Ísland. Niðurstöður úr greiningarvinnu og gagnasöfnun 20/20 Sóknaráætlunar urðu í framhaldi grunnurinn að stefnumarkandi framtíðarsýninni, Ísland 2020. Eitt af verkefnum Íslands 2020 er að einfalda, fækka og samþætta helstu stefnur og áætlanir sem ráðuneyti og stofnanir hafa verið að setja fram á síðastliðnum árum. Grundvöllur þeirrar vinnu var greining á 11 stefnum og áætlunum með það að leiðarljósi að fækka þeim, samþætta og einfalda en jafnframt vinna heildstæðar tillögur að breyttu skipulagi fyrir stefnumótun og áætlanagerð innan stjórnsýslunnar. Greiningin á stefnunum var unnin sem hluti af verkefninu um einföldun og fækkun stefna og áætlana. Heildargreiningin var upp á 198 greiningarþætti. Af þeim voru 108 til staðar (55%), 52 voru að hluta til staðar (26%) og 38 voru ekki til staðar (19%). Þegar litið er til grunnþáttanna, eins og hvort stefnan eða áætlunin byggi á rann sóknum eða greiningum þá kemur það almennt nokkuð vel út úr greiningunni. Greiningin leiðir í ljós að styrkleiki stjórnsýslunnar felist í undirbúningi, greiningu og setningu markmiða. Veikleiki stjórnsýslunnar felst m.a. í skorti á tengingu við fjármagn, ófullnægjandi framkvæmd og tak markaðri eftirfylgni. Í greininni eru lagðar fram tillögur að nýrri framtíðarsýn í stefnumótun innan stjórnsýslunnar. Þær fela í sér að bæta yfirsýn og vinnu brögð, m.a. með því að fækka stefnum og áætlunum, tengja stefnumótun og áætlanagerð ráðuneyta við undirbúning fjárlaga og tryggja að árangursmat og eftirlit sé alltaf fyrir hendi.

  • Útdráttur er á ensku

    The coalition government in Iceland launched the 20/20 Moving Iceland Forward Initiative in 2009. The results of the data collection and the analysis that took place as part of that initiative led to the strategic vision, Iceland 2020. One of the objectives set out in Iceland 2020 is to simplify, reduce and integrate major policies and plans of Ministries and agencies that have been developed in recent years. The basis of this work was the analysis of 11 major policies and plans with the aim of developing concrete recommendations on how policy and planning needs to change within the Icelandic Public Administration. The results of the analysis was that 198 criteria’s were analysed, 18 criteria’s for each of the 11 policies. 108 fulfilled the criteria (55%), 52 partially fulfilled it (26%) and 38 were not present (19%). In general, the strength of the Icelandic admin i stra tion is mainly in the preparation, analysis, goals and objectives setting during the policy process. The weaknesses lie in the lack of connection with funding, poor imple menta tion and in sufficient monitoring and evaluation. This paper sets out proposals for a new vision and methodology on how public policy and planning within the Icelandic Public Administration should be executed. They include adding perspective and practices to the process by reducing policies and plans; linking policies and planning within Ministries to the national budgetary process and guidelines to ensure that performance measurement and monitoring is always available.

Birtist í: 
  • Stjórnmál og stjórnsýsla
Athugasemdir: 
  • Fræðigrein
Samþykkt: 
  • 25.6.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12294


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
a.2012.8.1.7.pdf1.77 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna