is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1230

Titill: 
  • Foreldrar og líðan barna : Vilja foreldrar stuðning í foreldrahlutverkinu?
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Meginmarkmið þessarar rannsóknar er að kanna viðhorf foreldra og
    forráðamanna til stuðnings í foreldrahlutverkinu og aukinnar eða bættrar samvinnu
    við skólana og aðrar samfélagslegar stofnanir. Rannsóknarspurningarnar eru: Vilja
    foreldrar stuðning í foreldrahlutverkinu og ef svo er, þá hvers konar og með hvaða
    hætti? Hér er um að ræða sjálfstæða rannsókn sem er þó liður í stærra verkefni, þ.e.
    þróunar- og forvarnarverkefninu Barnið í brennidepli sem höfundur vinnur einnig að
    ásamt fleirum.
    Helstu tildrög verkefnisins eru þau að víða, bæði í fjölmiðlum og meðal
    almennings, er rætt um agaleysi í þjóðfélaginu og ýmsir sem vinna með börn og
    fjölskyldur telja sig merkja að andfélagsleg hegðun hafi aukist meðal barna og
    unglinga og að visst öryggisleysi ríki meðal foreldra. Síðastliðin 50 ár hafa orðið
    miklar viðhorfsbreytingar í samfélaginu m.a. í breyttu fjölskyldumynstri og áherslum
    í uppeldismálum. Lífslíkur hafa aukist í hinum vestræna heimi en á sama tíma hafa
    sálfélagslegar raskanir aukist hjá unglingum. Talið er að hver og einn búi annars vegar
    yfir verndandi þáttum og hins vegar yfir áhættuvaldandi þáttum í lífinu. Það fer eftir
    vægi verndar- og áhættuþátta hjá hverjum einstaklingi hvort honum vegnar vel eða
    illa. Veruleg tengsl virðast vera milli verndarþátta og sjálfsvitundar.
    Vitað er að foreldrar eru mikilvægur verndandi eða áhættuvaldandi þáttur í lífi
    barna og unglinga eftir því hvernig til tekst. Það getur haft veruleg áhrif á
    tilfinningalíf unglinga hvernig foreldrar koma fram við þá í uppvextinum. Einnig er
    vitað að samstarf heimilis, skóla og samfélags og þátttaka foreldra í skólastarfi skilar
    sér í bættum námsárangri og líðan barna og unglinga. Til að bæta líðan barna og
    unglinga mætti hugsa sér að samfélagslegar stofnanir legðu sitt af mörkum til að
    styrkja foreldra í foreldrahlutverkinu.
    Spurningalistar voru lagðir fyrir foreldra og forráðamenn í einu skólahverfi í
    þéttbýli utan höfuðborgarsvæðisins vorið 2003. Úrtakið var valið af handahófi. Alls
    fengu foreldrar eða forráðamenn 180 barna á aldrinum 4-12 ára spurningalistann
    heim, 10 barna af hvoru kyni í hverjum árgangi. Þýðið var 433 börn. Hundrað þrjátíu
    og einum spurningalista var svarað eða 72%.
    Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að 68% svarenda vilja stuðning í
    foreldrahlutverkinu með einum eða öðrum hætti. Flestir vilja stuðning í að byggja upp
    sjálfstraust, bregðast við einelti, fræðast um námstækni, efla tilfinningaþroska og
    styrkja samskiptahætti. Einkum virðist fólk vilja stuðning í formi fyrirlestra,
    námskeiða og með persónulegri ráðgjöf. Sjaldnast er marktækur munur á milli svara
    þeirra sem vilja stuðning í foreldrahlutverkinu og þeirra sem ekki vilja hann. Þó óska
    þeir foreldrar sem telja sig ekki svo mjög örugga í foreldrahlutverkinu frekar eftir
    stuðningi en hinir. Stór meirihluti foreldra telur að skólanum og lögreglunni beri að
    taka þátt í uppeldinu með þeim en þó leitaði einungis um helmingur svarenda ráða til
    skólans varðandi uppeldismál og enginn sagðist leita til lögreglunnar.

Samþykkt: 
  • 1.1.2005
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1230


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Birna María Svanbjörnsdóttir_heild.pdf570.39 kBOpinnForeldrar - heildPDFSkoða/Opna