is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BA Lagadeild / Department of Law >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12327

Titill: 
  • Miskabætur vegna kynferðisbrota gegn börnum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar ritgerðar er að skoða dóma Hæstaréttar, frá 1. febrúar 2002 til 1. febrúar 2012, í málum þar sem börn hafa verið beitt kynferðislegu ofbeldi og kanna hversu háar miskabætur þau fá dæmdar. Skoðað var hvort bæturnar hafi hækkað á rannsóknar-tímabilinu í samræmi við þyngri refsingar í umræddum málaflokki. Einnig voru miskabótakröfur þolenda skoðaðar sérstaklega, bæði hversu háar þær voru og hvernig þær voru rökstuddar.
    Rannsóknin leiddi í ljós að nær undantekningarlaust var farið fram á miskabætur fyrir hönd barns sem varð fyrir kynferðisofbeldi. Hæstiréttur féllst nánast alltaf á greiðslu bóta en dæmdar bætur eru yfirleitt töluvert lægri en framlögð krafa. Aðeins 60% krafnanna voru studdar sérfræðigögnum um afleiðingar brota á þolanda en aðrar kröfur voru aðeins rökstuddar með almennri vitneskju um skaðsemi þessara brota. Sérfræðigögn voru frekar lögð fram í alvarlegri málunum en niðurstöður rannsóknarinnar sýna að bæði framlagðar kröfur og dæmdar bætur eru hærri þegar vinna hefur verið lögð í að meta afleiðingar brots. Rannsóknin leiddi ekki í ljós marktæka hækkun dæmdra miskabóta á rannsóknartímabilinu.
    Þá er einnig farið ítarlega yfir löggjöfina í umræddum málaflokki, réttarstöðu brotaþola og þær reglur sem gilda um greiðslu miskabóta til þolenda afbrota. Að lokum er bent á það sem betur mætti fara í málsmeðferðinni.

  • Útdráttur er á ensku

    The purpose of this thesis is to review rulings of the Supreme Court of Iceland, from February 1st 2002 to February 1st 2012, in cases where children have been sexually abused and explore the amount of non-pecuniary damages they received. A study was done on whether the compensations increased during this period in accordance with more severe punishments in these kinds of cases. Special attention was paid to the victims’ claims, how high they were and how they were supported.
    The study revealed that, nearly without exception, non-pecuniary damages were requested on behalf of the children who had been sexually abused. The Supreme Court almost always agreed on compensations to the victims but the amount was usually significantly lower than their claims. Only 60% of the claims were supported by expert opinion on the consequences of the abuse on the victim. Other claims were only supported by general knowledge about the harmfulness of such abuse. Expert opinion tended to be submitted in more severe cases but the research showed that both the claims and the compensations awarded to victims were higher when work had been put into evaluating the consequences of the abuse. The study did not reveal a significant increase of compensations awarded to victims during the period.
    The legislation in this field, the legal status of these victims and the rules that apply to payment of non-pecuniary damages to the victims are also reviewed in detail. The final analysis is that improvements can be made to court procedures.

Samþykkt: 
  • 26.6.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12327


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Miskabætur vegna kynferðisbrota gegn börnum.pdf945.99 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna