is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Ráðstefnurit >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12374

Titill: 
  • „Indæl“ markmið en ógerningur að sinna þeim öllum : list- og verkgreinar : áætlað umfang og nýting námskráa við undirbúning kennslu
Útgáfa: 
  • 2011
Útdráttur: 
  • Í greininni er sagt frá fyrstu niðurstöðum rannsóknar á list- og verkgreinum. Fjallað er annars vegar um áætlað umfang greinanna út frá fjölda sérhæfðra kennara og með hliðsjón af viðmiðunarstundaskrá aðalnámskrár grunnskóla. Hins vegar er umfjöllun um nýtingu list- og verkgreinakennara á aðalnámskrá og skólanámskrá við undirbúning kennslu og hópur list- og verkgreinakennara borinn saman við aðra kennara í þeim efnum. Rannsóknin er unnin í tengslum við rannsóknina Starfshættir í grunnskólum. Tuttugu grunnskólar í fjórum sveitarfélögum tóku þátt í rannsókninni og er hér unnið úr spurningalistum til starfsmanna og hópviðtölum við list- og verkgreinakennara. Niðurstöður bentu til að fjöldi sérhæfðra list- og verkgreinakennara í skólunum væri ekki í samræmi við þann lágmarkstíma sem greinunum er ætlaður í aðalnámskrá grunnskóla. Niðurstöður leiddu einnig í ljós að aðeins um 59% list- og verkgreinakennara studdust að öllu eða miklu leyti við aðalnámskrá við undirbúning kennslu að hausti og að þeir studdust síður við aðal- og skólanámskrá en aðrir kennarar skólanna. Jafnframt kom fram að list- og verk-greinakennarar höfðu kennt lengur í viðkomandi skólum en aðrir kennarar.

Birtist í: 
  • Ráðstefnurit Netlu : Menntakvika 2011
Samþykkt: 
  • 27.6.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12374


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
kristinaol.pdf386.11 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna