Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1242
Tilgangur rannsóknarinnar, sem gerð er grein fyrir í þessari ritgerð, er þríþættur. Í
fyrsta lagi er hann að komast að því hvort til séu aðgerða- og verklagsreglur fyrir
sykursjúka nemendur í íslenskum grunnskólum. Í öðru lagi er hann gera grein fyrir
hvernig slíkar reglur eru eða ættu að vera og í þriðja og síðasta lagi að skoða hver
aðbúnaður sykursjúkra barna er í íslenskum grunnskólum. Rannsóknarspurningarnar
eru því þrjár: Eru til aðgerða- og verklagsreglur fyrir sykursjúka nemendur í
íslenskum grunnskólum? Hvað þurfa aðgerða- og verklagsreglur að innihalda og
hvernig er aðbúnaður sykursjúkra barna í grunnskólum?
Nokkrar ástæður liggja að baki þessu vali. Insúlínháð sykursýki er einn af algengustu
sjúkdómum meðal barna og nýgengi sykursýki hefur farið hækkandi meðal barna á
Íslandi á síðustu árum. Fleiri ástæður má tilgreina til að mynda þær að ég var með
sykursjúkum nemanda í bekk í grunnskóla, var umsjónarkennari sykursjúks barns og
einnig er bróðir minn sykursjúkur.
Í rannsókninni kom fram að aðbúnaður sykursjúkra nemenda í grunnskólum ræðst af
aldri þeirra. Því yngri sem nemendurnir eru þeim mun meiri aðstoð og stuðning fá
þeir en eftir því sem þau eldast hugsa þau meira um sig sjálf.
Helsta niðurstaða rannsóknarinnar er að búnar voru til aðgerða- og verklagsreglur
fyrir sykursjúka nemendur í íslenskum grunnskólum. Aðgerða- og verklagsreglurnar
voru búnar til eftir að hafa rannsakað hvað starfsmönnum skóla þætti æskilegt og
mikilvægt að hafa í þeim. Einnig voru hafðar til hliðsjónar fyrirmyndir erlendis frá og
þær fjórar aðgerða- og verklagsreglur sem til voru í íslenskum grunnskólum.
Nokkrar ályktanir er hægt að draga af niðurstöðum rannsóknarinnar. Helst er að nefna
mikilvægi þess að semja aðgerða- og verklagsreglur fyrir sykursjúka nemendur í
grunnskólum. Þær eru mikilvægar og hafa notagildi fyrir foreldra, allt starfsfólk skóla
og nemandann. Þær auka samskipti heimila og skóla, öryggi starfsfólks í allri
umönnun nemandans, aðbúnað og öryggi nemandans sjálfs og hlutverk hvers og eins
verður skýrara.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hrafnhildur Sólrún Sigurgeirsdóttir_e.pdf | 123.45 kB | Opinn | Sykursjúkir - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Hrafnhildur Sólrún Sigurgeirsdóttir_h.pdf | 179.53 kB | Opinn | Sykursjúkir - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
Hrafnhildur Sólrún Sigurgeirsdóttir_heild.pdf | 5.26 MB | Opinn | Sykursjúkir - heild | Skoða/Opna | |
Hrafnhildur Sólrún Sigurgeirsdóttir_u.pdf | 89.37 kB | Opinn | Sykursjúkir - útdráttur | Skoða/Opna |