Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12455
Tilgangur rannsóknarinnar var tvíþættur. Skoða mun á hreyfifærni 7-9 ára barna á Íslandi og Afríku og skoða hvort væri kynjamundur á hreyfifærni barnanna. Rannsóknin er megindleg og lýsandi tölfræði var notuð við greiningu gagna. Þátttakendur í rannsókninni voru 32 börn þar af 16 börn frá Gínea Conakry í Afríku og 16 börn frá Íslandi. Hreyfiþroskaprófið Movement-2 ABC (MABC-2) var notað til að mæla hreyfifærni barnanna. Prófið skoðar boltafærni, fínhreyfingar og jafnvægi. Niðurstöður prófanna voru færðar inn í tölfræðiforritið SPSS. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að stúlkur á Íslandi eru betri á öllum þáttum miðað við íslenska drengi. Í Gínea skoruðu drengir hærra í boltafærni en stúlkurnar skoruðu hærra í jafnvægi og fínhreyfingum. Í rannsókninni kom einnig fram marktækur munur á boltafærni afrískra og íslenskra barna en afrísku börnin skoruðu þar hærra. Á heildarstaðalskori á MABC-2 hreyfiþroskaprófinu mældist ekki marktækur munur milli barnanna í Afríku og á Íslandi. Því má leiða líkur á því að umhverfisáhrif og menningarmunur hafi áhrif á vissa hreyfifærni barna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
lokaritgerð-Asdis_Halldorsdottir-0511794989-1.pdf | 680.7 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |