is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > BSc Verkfræðideild (áður Tækni- og verkfræðideild) og íþrótta-, iðn- og tæknifræði -2019 / Department of Engineering (was Dep. of Science and Engineering) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12488

Titill: 
  • Handbók um yngri flokka þjálfun í knattspyrnu
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið þessa verkefnis var að útbúa þjálfarahandbók sem þjálfarar yngri flokka Hauka í knattspyrnu gætu nýtt við sína þjálfun og þróað áfram með tímanum. Handbókin auðveldar þjálfurunum að vera meðvitaðri um þá þjálfun sem á sér stað í yngri flokkum félagsins og einnig hjálpar hún þeim að átta sig á því hvaða þætti á að leggja áherslu á í þjálfun hvers flokks fyrir sig.
    Verkefnið var tvískipt, annars vegar fræðileg umfjöllun um þá þætti sem knattspyrnumenn þurfa að búa yfir og hugmyndir um aðferðir til að þjálfa upp hvern þátt fyrir sig. Hins vegar var það handbókin sjálf en hugmyndin á bakvið útfærslu hennar var sú að hún væri sett fram á einfaldan hátt og væri auðskiljanleg fyrir þjálfarana. Teknir voru fyrir tæknilegir-, líkamlegir-, andlegir- og leikfræðilegir áhersluþættir í hverjum aldursflokki.
    Með lestri þessa verkefnis getur viðkomandi orðið margfróðari um þá þætti sem góður knattspyrnumaður þarf að búa yfir og fengið hugmyndir um það hvernig og hvenær sé árangursríkast að þjálfa upp hvern þátt fyrir sig.

Samþykkt: 
  • 3.7.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12488


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaverkefni lokaútg.pdf995.04 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna