Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12547
Verkefni þetta er unnið með það að markmiði að skoða hvort að tómstundaþjálfun (e. leisure education) geti hjálpað ungmennum á aldrinum 16-18 ára að fóta sig eftir meðferð. Í ljósi þess er áhættuhegðun skoðuð og hvað það er sem ýtir undir hana.
Skoðuð eru þau úrræði sem í boði eru á Íslandi fyrir ungmenni sem hafa lent í höndum vímuefna og hvert atvinnulaus ungmenni geta leitað sér aðstoðar.
Við heimildaleit kom í ljós að meðferðarúrræði á Íslandi eru fá og eftirmeðferðum er ábótavant að mati höfundar.
Því er niðurstaða höfundar sú að tómstundaþjálfun í skólum eigi að geta komið í veg fyrir að ungmenni leiti í áhættuhegðun. Þó er ljóst að vímuefnaneysla verður til staðar hjá ungmennum á meðan efnin eru í boði.
Hægt er að hjálpa ungmennunum með því að gera tómstundaþjálfun að einum af þáttum áfengis- og vímuefnameðferðar þar sem að ungmennum er kennt og þau þjálfuð í að nota frítíma sinn á uppbyggilegan máta.
Rannsóknarspurningin sem var lögð fyrir er: Hvernig getur tómstundaþjálfun hjálpað 16-18 ára ungmennum að fóta sig eftir meðferð?
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Eyrún Haraldsdóttir - Líf eftir áfengis- og vímuefnameðferð.pdf | 631.37 kB | Opinn | Skoða/Opna |