Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12585
Umfjöllun okkar um viðfangsefnið að loknum inngangi hefst með almennri umfjöllun um Íslendingasögur, meðal annars uppruna þeirra, ritunartíma og varðveislu. Einnig fjöllum við um frásagnarhátt og stíl Íslendingasagna. Sá kafli er helgaður Harðar sögu og Hólmverja. Þar er fjallað um söguþráð, persónur, sögusvið og samfélag.
Síðari hluti ritgerðarinnar fjallar um kennslufræði. Fyrst er gerð grein fyrir íslenskuhluta Aðalnámskrár grunnskólanna frá árinu 2007. Einnig er tekin fyrir kennsla fornbókmennta og sú spurning rædd og hvort þær eigi rétt á sér sem kennsluefni í grunnskólum landsins. Þar á eftir er gerð grein fyrir námsmati í bókmenntakennslu. Í lokin höfum við sett saman leiðbeiningar um kennslu í Harðar sögu og Hólmverja og vonum við að kennarar geti nýtt sér þær.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Fornbokmenntir_og_grunnskolakennsla.pdf | 869.58 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |