Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12603
Gerð var eigindleg rannsókn sem var ætlað að svara rannsóknarspurningunni ,,Hvernig semja þeir tónlist sem spila á píanó eingöngu eftir eyranu?“ Tekin voru viðtöl við þrjá einstaklinga og svör þeirra borin saman. Niðurstöður leiddu í ljós að hver og einn viðmælandi hefur þróað með sér sínar eigin aðferðir við að semja tónlist. Tónlistarsköpunin fylgir ekki neinu ákveðnu ferli heldur komast einstaklingarnir í ákveðið hugarástand sem setur sköpunarferlið í gang. Þetta áttu viðmælendur erfitt með að útskýra en vildu þó meina að ,,það er bara eitthvað sem gerist.“ Allir geta samið tónlist ekki aðeins þeir fáu útvöldu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni1.pdf | 480.02 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |