is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12608

Titill: 
  • Fjölmenning og börn : temjum okkur umburðarlyndi og samkennd í skólastarfi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð er unnin af nemendum á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Þetta er heimildaritgerð sem fjallar um hvernig fjölmenning birtist yngri börnum grunnskóla. Markmið ritgerðarinnar var tvíþætt. Annars vegar að fjalla um mikilvægi fjölmenningarlegrar kennslu strax á fyrstu árum barna og hins vegar að taka fram árangursríkar aðferðir fyrir kennara til þess að koma erlendum nemendum inn í starf með íslenskum nemendum. Enn fremur reynum við að undirstrika mikilvægi þess að alast upp við fjölmenningarleg sjónarhorn og teljum við það að vera góða leið til þess að umburðarlyndi og samkennd verði okkur eðlislæg. Í fyrri hluta ritgerðarinnar tökum við fram lög og reglur sem stjórnendum grunnskóla á Íslandi ber að fylgja. Þetta eru grunnskólalög sem eru gefin út af Alþingi, Aðalnámskrá grunnskóla sem er gefin út af mennta- og menningarmálaráðuneyti og Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna. Við kynntum okkur starfsemi þriggja grunnskóla á Íslandi og eins leikskóla sem vinna með fjölmenningu í skólastarfi sínu. Í síðari hluta ritgerðarinnar fjöllum við um leiðir fyrir kennara til þess að bæta fjölmenningu inn í starf sitt með nemendum. Við tökum fram kennsluaðferðir, verkefni, leiki og hugmyndir um námsmat í þessum kafla. Við ljúkum ritgerðinni á samantekt.

  • Útdráttur er á ensku

    The following essay was written by students in the Education Department of The University of Iceland. This is a research essay discussing how multiculturalism appears to the youngest children in elementary schools. The goal of it was twofold. On one hand to discuss the importance of multicultural education in the first years in a child’s life and on the other hand to state effective actions for teachers to integrate foreign children into the work the Icelandic students are doing. Moreover we try to underline the importance to grow up with multicultural points of view and we think it is a good way for tolerance and compassion to be inherent to us. In the first part of the essay we mention laws and regulations that schools must follow. These are elementary school laws that are issued by the Parliament, elementary schools main curriculum, which is published by the Ministry of Culture and Education and the United Nations Convention on the Rights of the Child. We acquainted ourselves with the operations of three elementary schools in Iceland and one kindergarten that work with multiculturalism in their curriculum. For the second part of the essay we address ways for teachers to add multiculturalism to their work with students. We note teaching methods, projects, games and ideas for assessment/evaluation in this chapter. The essay ends with a summation.

Samþykkt: 
  • 12.7.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12608


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaskrif.pdf493.42 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna