is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12722

Titill: 
  • Almenningsgarðar á Íslandi
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er dregin saman og skrásett saga og þróun íslenskra almenningsgarða. Ítarlega er fjallað um 35 af um 60 almenningsgörðum á landinu. Nær engar rannsóknir sem tengjast viðfangsefninu hafa verið gerðar og því var mikið stuðist við frumheimildir af skjalasöfnum um allt land. Í nær öllum bæjum landsins er að finna opin og græn svæði sem eru hugsuð til afþreyingar fyrir íbúa bæjarins og mætti kalla almenningsgarð. Bæir á Íslandi urðu til tiltölulega seint í samanburði við önnur lönd og því byggjast flestir almenningsgarðar landsins upp á tímabilinu frá 1910 til 1970. Eftir það er byrjað að byggja upp stór útivistarsvæði sem bjóða uppá fjölbreytta afþreyingarmöguleika fyrir almenning, en eru ekki eiginlegir almenningsgarðar. Í ritgerðinni er saga íslenskra almenningsgarða sögð með því fjalla sérstaklega um hvern og einn garð í tímaröð, eftir því hvenær þeim var ákveðin staður. Byrjað er á elsta garðinum sem er Austurvöllur í Reykjavík og endað á einum af þeim yngsta, Lýðveldisgarðinum við Hverfisgötu í Reykjavík.

Samþykkt: 
  • 10.8.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12722


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
2. Titilsida almenningsgardar.pdf5.73 kBOpinnTitilsíðaPDFSkoða/Opna
1. Forsida almenningsgardar.pdf28.76 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna
MARitgerð án mynda.PDF1.01 MBLokaður til...01.08.2030MeginmálPDF

Athugsemd: Vegna stærðar ritgerðarinnar voru myndir teknar út. Þær fylgja prentuðu eintaki í lokaritgerðasafni Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns.