is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12810

Titill: 
  • Leikur sem lausn : um ávinning af notkun leiklistar í kennslu
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þetta er lokaverkefni mitt til fullnaðar B.Ed.-gráðu í grunnskólakennarafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands árið 2012. Tilgangur þessarar ritgerðar er sá að skoða notagildi leiklistar í kennslu og hvaða áhrif aðferðin hefur á nemendur. Fjallað verður um fjölbreytni í kennsluháttum og athyglinni beint að gildi leiklistar í kennslu eða sem kennsluaðferðar. Einnig verður aðalnámskrá grunnskóla skoðuð og hvað hún segir okkur um notkun leiklistar í kennslu. Að lokum er leikræn tjáning eða leiklist í kennslu skoðuð út frá rannsóknum og skriflegum heimildum. Fram kemur að ávinningurinn sem nemendur geta haft af leiklist í kennslu er meðal annars að skilningur á námsefninu eykst, nemendur vinna með tilfinningar sínar í gegnum hlutverkaleiki þar sem þeir setja sig í spor annarra og þurfa að sýna sjálfstæði og bregðast við atvikum. Einnig þurfa nemendur að læra að vinna með öðrum í hópum, skiptast á skoðunum og hlusta á aðra. Leiklist í kennslu eða leikræn tjáning sem kennsluaðferð hefur verið þekkt í tugi ára og lögð hefur verið áhersla á notkun leikrænnar tjáningar í grunnskólum hér á landi alveg frá árinu 1976. Samt sem áður hefur þessi kennsluaðferð ekki verið nýtt í þeim mæli sem aðalnámskrá mælir fyrir um.

Samþykkt: 
  • 4.9.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12810


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaverkefni B.Ed..pdf385.69 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna