is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12814

Titill: 
  • Lestur er auðlind : hvað felst í læsi og lestrarþróun barna?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er fjallað um hugtakið læsi og undirþætti þess: mál; lestur; hlustun og ritun. Leitast er eftir að svara spurningunni: Hvað felst í læsi og hvernig þróast lestrarkunnátta barna? Farið er yfir hugtakið læsi og skilgreiningar á því kynntar. Málþætti tungumálsins eru gerð skil og farið yfir byrjun málþroska hjá börnum, hvernig hann þróast og tengist öðrum meginþáttum læsis, sem eru: lestur; hlustun og ritun. Þar er skoðað hvernig má stuðla að góðum málþroska og áhrif meðvitaðar málkenndar á komandi lestrarnám. Skoðað er þróun lesturs og þá undirþætti sem honum tengjast og skipta sköpum til að hægt sé að tileinka sér lestur, það er: hljóðkerfisvitund; hljóðavitund; orðaforði; lesskilningur og lesfimi. Skoðuð er kenning Linnea C. Ehri um sjónrænan orðaforða og er hún notuð til hliðsjónar og ætlað að lýsa lestrarþróuninni og þeim stigum sem börn ganga í gegnum til að öðlast læsi. Rætt er um kenninguna um einfalda lestrarlíkanið og skoðuð eru skilningslíkön sem notuð hafa verið til að lýsa því hvernig lesari túlkar upplýsingar í málinu til að skilja texta. Í lokin er farið yfir þróun ritunar og stafsetningar. Skoðað er hvernig hæfni til ritunar byrjar og hver tengslin eru á milli hennar og lesturs. Í lokin er farið í samantekt og umræðu um efni ritgerðarinnar.

Samþykkt: 
  • 4.9.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12814


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lestur er auðlind.pdf551.81 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna