is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12827

Titill: 
  • Húfa, í fræðilegu og sögulegu samhengi : greinagerð með kennsluheftinu “Hvar er húfan mín„.
  • Hvar er húfan mín? : verkefnabók fyrir grunnskólanemendur.
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þetta verkefni fjallar um húfur og höfuðföt en hlutverk þeirra er margþætt og breytilegt og þá helst í tengslum við veðurfar, þ.e. til varnar kulda, hita og regni. Höfuðföt hafa einnig verið notuð við ýmis konar athafnir sem endurspeglast gjarnan í fatnaði þjóða. Viss tegund höfuðbúnaðar hefur verið notaður til þess að halda hári í ákveðnum skorðum, til skrauts og eftir tískustraumum.
    Samkvæmt aðalnámskrá grunnskólanna er talað um að setja textílkennslu í félagslegt og sögulegt samhengi. Með því að leita í fortíðina og finna heimildir fyrir því hvernig höfuðföt fólk notaði á 18. öld og fram að okkar tímum getur verið áhugavert að fræða nemendur um ýmis höfuðföt sem notuð voru í þá daga um leið og nemendur vinna að sínum húfum.
    Auk þessarar greinargerðar ætla ég að gera verkefnabók og taka þar saman hugmyndir fyrir húfugerð sem hægt er að nota í grunnskólum. Fjallað verður um hráefnin sem ég mun nota við gerð höfuðfatanna, þ.e. ullina sem hefur verið nýtt á Íslandi frá því að land var numið og flísefni sem mikið er notað í útivistarfatnað eins og húfur og peysur.

Samþykkt: 
  • 5.9.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12827


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Húfa, í fræðilegu og sögulegu samhengi..pdf602.1 kBLokaður til...02.05.2132GreinargerðPDF
Hvar er húfan mín, verkefnabók.pdf4.04 MBLokaður til...02.05.2132HeildartextiPDF