Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12828
Ágrip
Verkefni þetta fjallar um mikilvægi þess að nota fjölbreyttar kennsluaðferðir við nám og kennslu á unglingastigi. Í verkefninu verður fjallað um unglingsárin, en flestir nemendur á unglingastigi ganga þá í gegnum töluverðar þroskabreytingar bæði líkamlegar, félagslegar og andlegar. Höfundur sýnir fram á mikilvægi lífsleiknikennslu í þeim tilgangi að auka sjálfstraust unglinga og mun benda á í því sambandi að hentugt geti verið að nota leikrænar aðferðir í lífsleiknikennslu. Höfundur mun kynna til sögunar Þátttökuleikhús sem er hugarfóstur leikhúsmannsins Agusto Boal og tilheyrir aðferðum úr leikhúsi hinna kúguðu eða Theater of the oppressed. Að lokum koma tillögur höfundar að kennsluefni fyrir unglingastig þar sem aðferðir Þátttökuleikhúss eru notaðar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
berglind_elva_tryggvadottir_lokaverkefni.pdf | 571.55 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
Berglind_Elva_kapa.pdf | 193.2 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |