is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12833

Titill: 
  • Trúarbrögð heimsins : trúarbragðafræðsla í anda söguaðferðar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þetta lokaverkefni til B.Ed.-gráðu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands beindist að því að semja kennsluverkefni í anda söguaðferðarinnar (e. Storyline). Settur er fram svokallaður sögurammi, ásamt fræðilegri umfjöllun og forsendur sögurammanns útskýrðar. Meginmarkmið höfundar var að setja saman skapandi, fjölbreytt og gagnlegt, en ekki síður skemmtilegt og lærdómsríkt verkefni sem hentar vel við trúarbragðafræðslu á unglingastigi. Í greinargerðinni er fjallað um hvers vegna eigi að kenna um trúarbrögð, hverjar séu helstu leiðir í kennslu um trúarbrögð og vikið að mikilvægi hennar í nútímasamfélagi. Einnig er fjallað um hvað skal varast og hver ávinningur góðrar kennslu um trúarbrögð getur verið. Söguaðferðin og kenningar sem hún byggist á verða útskýrðar og farið yfir gerð sögurammanns.

Samþykkt: 
  • 5.9.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12833


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
RITGERÐIN LOKA YFIRFERÐ.pdf600.54 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna