Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12848
Í þessari ritgerð er fjallað um kristinn grunnskóla, hvaða sérstöðu hann hefur og af hverju slíkur skóli á erindi við íslenskt samfélag í dag. Viðfangsefnið hefur verið mér huglægt lengi þar sem ég hef velt fyrir mér rétti foreldra til að velja skóla handa börnum sínum samkvæmt sinni trúar- og lífsskoðun.
Spurningu ritgerðarinnar verður svarað með því að sviðsetja grunnskóla fyrir 1- 4. bekk sem er kynntur í þriðja kafla verkefnisins og er nefndur Jakobsskóli. Í framhaldinu verður gerð grein fyrir áherslum skólans og hvernig þær samræmast grunnþáttum aðalnámskrár og lögum um grunnskóla. Sérstaklega verður fjallað um áherslur skólans í lestri og stærðfræði, þar sem mikill hluti yngsta stigs grunnskólans fer í að þjálfa þessa færni. Einnig verður rætt um hvaða erindi slíkur skóli á við samfélag nútímans.
Í ritgerðinni er unnið með fræðilegar heimildir og einnig gerð grein fyrir stuttu viðtali við Maríu Sighvatsdóttur, leikskólastjóra kristins leikskóla, þar sem fjallað er um eftirspurnina eftir kristnum skólum í íslensku samfélagi. Niðurstaða ritgerðarinnar er að það sé þörf á skólum sem starfa á kristnum grundvelli hér á landi og gæti Jakobsskóli verið hugsanlegur valkostur fyrir þá sem myndu kjósa það.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Jakobsskóli.pdf | 327.76 kB | Lokaður til...14.05.2138 | Heildartexti |