is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12858

Titill: 
  • Siðfræði og sjálfbærni í ferðamennsku. Getur siðfræði hjálpað í átt að sjálfbærni?
  • Titill er á ensku Ethics and sustainable tourism
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í þesari ritgerð er fjallað um siðfræði og hvaða áhrif hún getur haft til þess að stuðla að sjálfbærni í ferðamennsku á Íslandi. Farið er yfir kenningar úr dygðasiðfræði Aristótelesar og lögmálskenningu Immanuels Kants og hvernig þær gætu nýst okkur í dag í tengslum við ferðamennsku. Einnig er stór kafli um skrif David Fennell, sem er kanadískur fræðimaður og hefur skrifað mikið um siðfræði í ferðamennsku. Þá er einnig rýnt í skrif Kristjáns Kristjánssonar, Páls Skúlasonar, Róberts H. Haraldssonar, Sigurðar Kristinssonar og Vilhjálms Árnasonar um siðfræðileg málefni og málefni náttúrunnar. og siðfræði. Aðal umfjöllunarefnið er hvernig hægt er að tengja það sem áður hefur verið skrifað um siðfræðileg málefni við málefni náttúrunnar og ferðamennsku og nýta það til að koma á sjálfbærri ferðamennsku.
    Þessi ritgerð fjallar að stórum hluta um mikilvægi þess að ná fram sjálfbærri ferðamennsku hér á landi og að það þurfi vitundarvakningu meðal almennings um málefni náttúrunnar. Vakin er athygli á því að ferðaþjónustuaðilar, ferðamenn, stjórnvöld og almenningur allur þurfi að taka höndum saman til þess að skapa betra samfélag og lykilatriði til þess er að við sýnum náttúrunni virðingu og göngum ekki á auðlindir hennar. Einnig er fjallað um mikilvægi þess að setja siðareglur varðandi ferðamennsku til þess að hægt sé að ná fram sjálfbærri ferðamennsku.
    Tilgangur þessarrar ritgerðar er bæði að vekja fólk til umhugsunar um þessi mál og einnig að koma með tillögur um leiðir sem hægt er að fara til að nota siðfræði á vegferð til sjálfbærni.
    Lykilorð: Siðfræði, sjálfbærni, dygðasiðfræði, ferðamennska, umhverfismál, náttúruvernd, heimspeki

Samþykkt: 
  • 6.9.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12858


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Elísabet Katrín Friðriksdóttir MA ritgerð.pdf609.38 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna