is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12868

Titill: 
  • Mansal. Hinar ýmsu birtingamyndir mansals
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Flutningur fólks á milli landa hefur orðið mikill vegna aukinnar hnattvæðingar, samhliða því sem hefur mansal vaxið gríðarlega. Baráttan gegn mansali hefur verið talsvert til umræðu hér á landi sem annarsstaðar en árið 2000 settu Sameinuðu þjóðirnar fram hina svokölluðu Palermó bókun þar sem mansal er skilgreint og aðildarþjóðir hvattar til að aðlaga lög og reglur í baráttunni gegn þessari vá. Ritgerð þessi fjallar um mansal með áherslu á mikilvægi þess að sporna við mansali, jafnframt að bent er á ýmis vandkvæði við að skilgreina hvað mansal er. Skoðuð er orðræða ýmissa fræðimanna og samtaka um mansal og vændi og afleiðingar þess með tengingu við baráttuna gegn mansali, til dæmis baráttu samtaka vændiskvenna og skoðanir femínista en þessir hópar eru ósammála um hvar eigi að draga hugmyndafræðilega línu þegar vændi er annars vegar. Rædd eru ýmis afbrigði mansals og birtingarmyndir þess á meðal ólíkra samfélaga svo sem barnavændi, barnahermennska, kynlífsþrælkun og nauðungarvinna. Skipulögð glæpastarfssemi, fátækt, atvinnuleysi, stríðsátök og upplausn hefur ásamt menningarhefðum ýtt undir mansal. Sjónum er einnig beint að á hvern hátt mansal og vændi virðist þrífast á átakasvæðum þar sem friðargæslusveitir starfa.

Samþykkt: 
  • 7.9.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12868


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA Þórhallur -uppsett.pdf565.48 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna