Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12905
Í þessari ritgerð er reynt að leita skýringa á fjarveru samtímaljósmyndara í Íslenskri listasögu sem kom út árið 2011.
Hér er stiklað á stóru í íslenskri ljósmyndasögu og gerð tilraun til að tengja íslenskan listveruleika við skrif erlendra fræðimanna um efnið þar sem við á.
Safneign bæði Listasafns Íslands og Listasafns Reykjavíkur hefur farið stækkandi á undanförnum árum þegar kemur að verkum samtímaljósmyndara. Ljósmyndinni hefur verið gert hærra undir höfði eins og má meðal annars merkja af því að árið 2010 var Listahátíð í Reykjavík sérstaklega helguð ljósmyndinni. Sú þróun gaf annan tón en þann sem var látinn klingja þegar Íslensk listasaga var rituð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA endanleg_10sept.pdf | 677.54 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
ritgerdir_forsida_10sept_loka.pdf | 93.5 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
ritgerdir_titilsida-10sept_lokaskjal.pdf | 54.01 kB | Opinn | Titilsíða | Skoða/Opna |