is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12979

Titill: 
  • Viðhorf leikskólastjórnenda til starfa þroskaþjálfa í leikskólum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Eftirfarandi ritgerð er unnin með það fyrir augum að skoða viðhorf leikskólastjórnenda til starfa þroskaþjálfa í leikskólum. Niðurstöður rannsóknarinnar byggja á eigindlegri rannsóknaraðferð. Þátttakendur voru fjórir leikskólastjórnendur sem starfa allir sem leikskólastjórar á höfuðborgarsvæðinu. Viðtölin voru í samtalsformi og stuðst var við opinn spurningalista. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á viðhorf leikskólastjóra gagnvart störfum þroskaþjálfa innan leikskólanna. Leitast var við að tengja viðfangsefni rannsóknarinnar við fræðilega umfjöllun um skóla án aðgreiningar, sérkennslu, ólík sjónarhorn á fötlun, þróun þroskaþjálfa stéttarinnar og samvinnu fagstétta.
    Niðurstöður rannsóknar leiddu í ljós að þeir leikskólastjórnendur sem tóku þátt í rannsókninni eru ánægðir með störf þroskaþjálfa innan leikskólanna. Þeir telja menntun og sérþekkingu þeirra vera góða viðbót við þá þekkingu sem leikskólakennarar hafa. Leikskólastjórnendum finnst mikilvægt að fá stuðning og leiðsögn frá þroskaþjálfum og telja að samstarf þroskaþjálfa við annað starfsfólk sé mjög gott.
    Á heildina litið eru þessar niðurstöður taldar jákvæðar fyrir þroskaþjálfastéttina í heild sinni.
    Í ritgerðinni er fjallað um gagnsemi þessara niðurstaðna en þær má meðal annars nota til að sýna fram á mikilvægi þess að þroskaþjálfar séu starfandi innan leikskólanna og einnig hversu gagnlegt nám þroskaþjálfa er og hversu vel það getur nýst innan leikskólans.

Samþykkt: 
  • 12.9.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12979


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Viðhorf leikskólastjórnenda til starfa þroskaþjálfa í leikskólum.pdf1.27 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna