Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13049
Í verkefninu er fjallað um tvær aðferðir, MAPS og PATH í einstaklingsmiðaðri áætlanagerð, framkvæmd þeirra og notkun. Lokaverkefnið er í tveimur hlutum. Í fyrri hlutanum er gerð grein fyrir fræðilegum grunni einstaklingsmiðaðar áætlanagerðar ásamt aðferðunum MAPS og PATH og þær skilgreindar skref fyrir skref. Síðari hlutinn er í formi handbókar þar sem koma fram leiðbeiningar og dæmi um framkvæmd beggja aðferða. Handbókin er hugsuð sem leiðbeiningar fyrir foreldra, fagfólk og aðra sem vilja nýta sér MAPS og PATH. MAPS og PATH eru persónulegar aðferðir og byggjast báðar á góðri teymisvinnu þar sem einstaklingurinn er virkur þátttakandi og velur sjálfur sitt teymi. Þessi greinargerð er grunnurinn að þeirri handbók sem fylgir og er lokaverkefni okkar í þroskaþjálfafræðum við Háskóla Íslands.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Forsíða á greinargerð.pdf | 72.63 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
Forsíða á Handbók.pdf | 455.25 kB | Opinn | Forsíða á handbók | Skoða/Opna | |
Greinargerð.pdf | 1.15 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Handbók.pdf | 1.98 MB | Lokaður til...01.09.2132 | Handbók |