is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Þverfræðilegt nám > Umhverfis- og auðlindafræði >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13064

Titill: 
  • Beðið eftir óveðri. Aðlögun að loftslagsbreytingum í Reykjavík, staða þekkingar og aðgerða
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Loftslagsbreytingar eiga sér stað um allan heim, afleiðinga þeirra er nú þegar farið að gæta víðsvegar og er Ísland ekki undanskilið. Þessi ritgerð fjallar um aðlögun að afleiðingum loftslagsbreytinga í Reykjavík.
    Ritgerðin skiptist í þrjá meginhluta. Í fyrsta hluta er kynning á fræðilegum kenningum sem stuðst er við í rannsókninni sem eru dagskrárkenningar bandaríska stjórnmálafræðingsins John W. Kingdon til þess að varpa ljósi á stöðu stefnumótunar. Í öðrum hluta er staða þekkingar og aðgerða skoðuð, farið er yfir spár um loftslagsbreytingar á Íslandi með áherslu á Reykjavík, skilgreiningu aðlögunar, hlutverk sveitarfélaga og aðlögunarstefnur Norðurlandanna skoðaðar. Í þeim hluta var gerð rannsókn samkvæmt eigindlegri aðferðafræði sem byggir á viðtölum við lykilþátttakendur innan stjórnsýslu Reykjavíkurborgar, þar sem að reynt var að komast að því hver staða þekkingar og aðgerða væri þegar kemur að aðlögun. Í þriðja hluta voru þessar niðurstöður nýttar til þess að varpa ljósi á stöðuna í dag með hjálp dagskrárkenninganna.
    Rannsóknin sýnir að aðlögun að loftslagsbreytingum sem viðfangsefni skipulagðrar stefnumótunar hefur ekki komist á dagskrá stjórnmálanna, hvorki hjá ríkisstjórn né í sveitarfélaginu Reykjavík. Svo virðist sem, flestir þeir þættir sem þurfa til að móta stefnu með skipulögðum hætti og koma henni áfram eru ekki til staðar. Þó vegur ef til vill þyngst að stóratburðir, svo sem náttúruhamfarir hafa ekki orðið til þess að koma aðlögun að loftslagsbreytingum á dagskrá stjórnvalda á Íslandi.

  • Útdráttur er á ensku

    Climate change is taking place all over the world, its effects are already being felt in many places and Iceland is not excluded. This thesis deals with adaptation to the effects of climate change in Reykjavík.
    The research is divided into three main sections. The first section is an introduction to the theories relied upon in the research, namely, agenda setting theories from the American political scientist John W. Kingdon, which shed light on the current status of policy making. The second section presents the state of knowledge and current climate change adaptation actions, forecasts of climate change in Iceland with a focus on Reykjavik, the definition of adaptation, and the role of local authorities and adaptation policies in the other Nordic countries are also examined. In the second section, the results of a qualitative study are presented in which interviews with key participants were conducted in the administration of Reykjavík, in order to assess the status of knowledge and action when it comes to adaptation. In the third section, these results are used to illustrate the situation today with the help of the agenda setting theories.
    The study shows that adaptation to climate change as a subject of organized policy making has not reached the political agenda, neither from the government nor the municipality of Reykjavik. Apparently, most of the factors that are needed to shape policy on a regular basis and move it forward are not available. Perhaps the most important factor is that large events such as natural disasters have not yet occurred and put adaptation to climate change on the agenda of the government of Iceland.

Samþykkt: 
  • 17.9.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13064


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Margret_Helga_Gudmundsdottir_meistararitgerd.pdf601.46 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna