is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13073

Titill: 
  • „Þetta er ekki bara hlýðni.“ Sjálfsímyndarsköpun múslímakvenna
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Íslam eru ein umdeildustu trúarbrögð samtímans og því hefur meðal annars verið haldið fram að íslam og lýðræði séu ósamrýmanleg fyrirbæri. Þá hefur verið ýjað að því að múslímakonur víða um heiminn séu kúgaðar og þar sé trúnni fyrst og fremst um að kenna.
    Ritgerð þessi segir frá rannsókn minni á sjálfsímyndarsköpun íslenskra múslímakvenna. Markmið mitt var að komast að því hvernig konur upplifa sig innan íslam, hvert þær sækja sína trúarlegu þekkingu og hvernig þeirra trúarlega sjálfsímynd er samsett. Rætt verður um tvær stefnur endurvakningar og endurbóta innan íslam og hugmyndir kvennanna staðsettar gagnvart femínískri guðfræði og íslömskum femínisma. Þá verður sjálfsímyndarköpun íslensku kvennanna sett í samhengi við búsetu þeirra í díaspóru þar sem íslam eru ekki ráðandi trúarbrögð á Íslandi, og áhrif þess á sjálfsímyndarsköpun þeirra skoðuð.
    Ég notaðist við eigindlega aðferðafræði og studdist mestmegnis við vettvangsathuganir og opin viðtöl. Viðmælendur mínir voru sjö konur af fimm mismunandi þjóðernum sem skilgreina sig sem múslíma auk þess sem ég sótti nokkra kvennafundi í Ármúlamoskuna.
    Niðurstöður rannsóknarinnar leiða í ljós þrjú meginþemu í sjálfsímyndarsköpun múslímakvenna hérlendis en þemun mótast fyrst og fremst af félagslegum raunveruleika kvennanna og baklandi þeirra. Þemun eru hlýðni/undirgefni, málamiðlun og eigin skynsemi.
    Lykilorð: mannfræði, íslam, femínismi, sjálfsímynd, díaspóra

  • Útdráttur er á ensku

    Islam is a highly controversial religion in the world of today. It has been stated, amongst other things, that Islam is incompatible with democracy. Others have made generalizations concerning the oppression of muslim women and put the blame on Islam.
    This dissertation is based on my research into the lives of muslim women residing in Iceland. The purpose of which is to explore the way these women experience Islam, where they get their religious knowlegde from and how their religious identity is formed and maintained.
    I introduce two major movements within the history of Islam; revival and reform and how these movements have influenced (modern) islamic teachings. I am also concerned with how ideas of feminism and the relatively recent idea of islamic feminism affects the identity formation of muslim women. As well as living in a society where Islam is not the dominant religion.
    The research is a qualitative study based on interviews with seven women of five different nationalities who define themselves as muslims and some fieldwork I conducted in a local mosque. According to my findings muslim women in Iceland base their identity-formation around three dominating themes; obedience or submissiveness, compromise and ‘their own reasoning’. Similar threads could be found between new trends in the practices of Islam worldwide and amongst my interlocutors although built on differing grounds.
    Keywords: anthropology, Islam, feminism, identity, diaspora.

Samþykkt: 
  • 17.9.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13073


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
„Þetta er ekki bara hlýðni“.pdf712.34 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna