is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13137

Titill: 
  • Tengsl markaðsráða við víddir vörumerkjavirðis þjónustufyrirtækja á neytendamarkaði
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Fáar rannsóknir hafa verið gerðar með þann tilgang að kanna hver tengsl mismunandi markaðsráða eru við vitund, ímynd og vörumerkjavirði. Enn færri rannsóknir hafa kannað þessa þætti hjá þjónustufyrirtækjum á neytendamarkaði og er því ákveðið tómarúm í fræðunum. Markmið rannsóknarinnar var að kanna tengsl mismunandi markaðsráða við vitund og ímynd þjónustufyrirtækja á neytendamarkaði og að kanna tengsl vitundar og ímyndar við vörumerkjavirði. Kanna átti einnig hvort munur væri á þessum tengslum eftir ólíkum þjónustuflokkum, sem einkennast af hversu mikillar þátttöku er krafist af viðskiptavinum í þjónustuferlinu. Rannsóknin er sú fyrsta sinnar tegundar, samkvæmt bestu vitund höfundar. Rannsóknin byggist á megindlegri rannsóknaraðferð, í formi spurningakönnunar. Þeir markaðsráðar sem notast var við eru verð, kynningarstarf, verðtilboð, þjónustuferli, umhverfi og starfsfólk. Helstu niðurstöður sýna fram á að markaðsráðarnir starfsfólk og umhverfi hafa sterkustu tengslin við vitund og ímynd. Niðurstöður sýna jafnframt fram á að ímynd hefur helmingi sterkari tengsl við vörumerkjavirði, en vitund. Niðurstöður gefa til kynna að munur sé á tengslum markaðsráða við vitund og ímynd, sem og á tengslum vitundar og ímyndar við vörumerkjavirði eftir ólíkum þjónustuflokkum.

Samþykkt: 
  • 20.9.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13137


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Katrín Þ. Jóhannsdóttir - MS lokaritgerð.pdf537.9 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna