Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13162
Markmið þessa verkefnis er að útbúa viðskiptaáætlun fyrir fatamerkið Wanted Bodywear sem er í eigu Creatively Superior Inc. og leggja grunninn að áframhaldandi rekstri þess.
Framleiðsluferli í tískuheiminum í dag eru tvenns konar. Það er annars vegar hröð tíska (e. fast fashion) sem líka er kölluð tímalaus tíska. Þá eru nýjar vörur stöðugt sendar inn á markaðinn óháð því hver tími ársins er eða árstíð. Þetta gerir árlega framleiðslu tískuvara léttari með minni en tíðari ferlum og dreifir álagi bæði hjá framleiðendum og smásölum.
Hins vegar er hefðbundin tíska (e. traditional fashion) sem er hið aldar gamla framleiðsluferli fatamarkaðarins. Þá eru vörulínur tengdar við árstíðirnar vor og haust. Unnið er í 6 mánaða framleiðsluferlum. En það er dýrt og svo langir og þungir ferlar henta ekki sem best við nútíamaðstæður.
Höfundur þessarar ritgerðar hefur 12 ára faglega reynslu í fataiðnaði og á markaði tískuvara. Í þessari ritgerð er ætlunin að sýna fram á og færa rök fyrir því hvernig tímalaus tíska sé arðbærari en hefðbundin tíska. Það minnkar áhættu allra aðila á tískumarkaði að framleiða nýjar vörur oftar yfir árið en gert er í hefðbundnum framleiðsluferlum. Tekjur og gjöld verða tíðari með tímalausri tísku sem gerir rekstur allra hlutaðeigandi auðveldari og öruggari.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS_Lokaverkefni_Ingibjörg_Finnbogadóttir.pdf | 2.23 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |