is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13198

Titill: 
  • Snoppa kónguló og ævintýrið : greinargerð með bókinni og kennsluhugmyndum úr henni
  • Snoppa kónguló og ævintýrið
  • Snoppa kónguló og ævintýrið : kennsluhugmyndir
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Greinargerð þessari fylgir bók sem höfundur hefur samið fyrir nemendur á yngsta stigi grunnskólans og kennsluhugmyndir með henni. Bókin og kennsluhugmyndirnar byggja á fjölgreindum Gardners. Höfundur skoðaði hvernig styrkja má greindirnar hjá börnum og vann síðan kennsluhugmyndirnar fyrir hvern kafla bókarinnar. Verkefnin henta vel til kennslu á yngsta stigi grunnskólans. Bókin byggir þó ekki eingöngu á fjölgreindunum heldur má þar einnig finna skemmtilegan fróðleik um kóngulær þannig að efni hennar vekur einnig áhuga á umhverfinu. Í greinargerðinni er rýnt í kenningar fræðimenna um mikilvægi lesturs og uppeldisgildi sagna. Auk þess kemur þar fram hvers vegna umhverfisvitund skiptir okkur máli og fjallað er um fjölgreindarkenningu Gardners. Meðfram þessum þáttum er tekið tillit til Aðalnámskrár grunnskóla. Færð eru rök fyrir því hvers vegna barnabók sem þessi og kennsluhugmyndir með henni gagnast á yngsta stigi grunnskóla. Að lokum er gerð grein fyrir forprófun bókarinnar.

Athugasemdir: 
  • Halla Þórlaug Óskarsdóttir teiknaði myndirnar í barnabókinni: Snoppa kónguló og ævintýrið
Samþykkt: 
  • 26.9.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13198


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Rafrænt lokaverkefni vantar í Skemmu.pdf54.74 kBOpinnPDFSkoða/Opna