is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1322

Titill: 
  • "Fuglinn segir bí bí bí" : þemaverkefni á vef um fugla
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Eftirfarandi ritgerð er unnin sem lokaverkefni til B.Ed. – prófs við kennaradeild
    Háskólans á Akureyri, vormisserið 2004. Ritgerðin fjallar um námsefni sem nýtir
    Veraldarvefinn sem námsumhverfi og þá kennslufræði og þær kennsluaðferðir sem að
    baki því liggja.
    Í ritgerðinni er leitast við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum:
    Á hvern hátt má nýta upplýsingatækni og Veraldarvefinn við líffræðikennslu?
    Hvaða kennslufræði má ætla að henti vefstuddri kennslu?
    Hverjir eru kostir þess og gallar að nýta Veraldarvefinn sem námsumhverfi?
    Markmið skóla er að búa nemendur undir líf og starf í því þjóðfélagi sem þeir tilheyra.
    Gífurleg tækniþróun hefur átt sér stað í samfélaginu. Skólinn á að endurspegla
    samfélagið og því þarf námsefni og kennsluhættir að taka mið af því. Námsefnið sem
    hannað var er gott dæmi um hvernig nýta megi þessa auknu tækni.
    Námsefnið sem nefnist ,,Fuglinn segir bí bí bí“er ætlað miðstigi grunnskóla og er
    unnið út frá markmiðum Aðalnámskrár grunnskóla. Markmiðið með námsefninu er að
    gera nemendur meðvitaðari um þá fugla sem lifa í náttúrunni í kringum þá, efla
    umhverfisgreind þeirra og stuðla að umgengni við náttúruna af virðingu. Með því að
    hafa námsefnið á Veraldarvefnum er nemendum boðið upp á fjölbreytt og áhugavert
    námsumhverfi. Námsefnið ,,Fuglinn segir bí bí bí“ er á geisladiski í vasa á aftari
    kápusíðu.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2004
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1322


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Elsa og Hallfríður.zip14.86 MBTakmarkaðurBíbíbí - zipGNU ZIP
Elsa og Hallfríður_e.pdf87.85 kBOpinnBíbíbí - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Elsa og Hallfríður_h.pdf129.29 kBOpinnBíbíbí - heimildaskráPDFSkoða/Opna
Elsa og Hallfríður_heild.pdf409.61 kBTakmarkaðurBíbíbí - heildPDF
Elsa og Hallfríður_u.pdf64.52 kBOpinnBíbíbí - útdrátturPDFSkoða/Opna