is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Umhverfisdeild (2005-2016) > B.S. verkefni - Umhverfisdeild >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13232

Titill: 
  • Nærumhverfi geðdeilda - Gróður er nærandi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi heimildaritgerð er lokaverkefni til B.S. prófs í umhverfisskipulagi frá Landbúnaðar-háskóla Íslands. Hún fjallar um umhverfi tveggja geðdeilda í Reykjavík en það eru Geðdeild Landspítalans við Hringbraut og Geðdeild Landspítalans á Kleppi.
    Ritgerðin fjallar um hvort og þá hvernig umhverfi skiptir máli fyrir líðan manna og þá sérstaklega fyrir líðan og batahorfur geðsjúkra. Saga og aðstæður geðsjúkra í gegnum árin eru skoðaðar og eins er sjónum beint að tengslum manns og náttúru og hlutverki umhverfis í líðan og hugsanlega bættri heilsu manna. Erlendis, bæði austanhafs og vestan, hefur orðið mikil þróun eða vakning meðal landslagsarkitekta og umhverfisskipulagsfræðinga varðandi umhverfi sjúkrastofnanna og mikið lagt í rannsóknir hvað það varðar. Fjallað er um þá þætti í ritgerðinni, sagt frá hugmynd að heilsugarði í Hveragerði og frá umhverfi geðsjúkrahúss í Kanada og hvernig þeir nýta umhverfið sem meðferðarúrræði. Umhverfi tveggja geðdeilda í Reykjavík er tekið út og greint.
    Grunnniðurstaðan er að umhverfi hefur greinileg áhrif á líðan og heilsu manna til hins betra, og að umhverfi þessara tveggja geðdeilda geri lítið sem ekkert til að bæta heilsu og líðan þeirra sjúklinga sem þar dvelja.

Samþykkt: 
  • 4.10.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13232


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Nærumhverfi geðdeilda - gróður er græðandi - Erla Þórðardóttir[1].pdf4.84 MBOpinnPDFSkoða/Opna