Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13234
Markmið þessa verkefnis var að leitast við að svara eftirfarandi spurningu:
Er hægt að hanna skólalóð og útivistarsvæði með áherslu á þarfir heyrnarskertra?
Gerð var athugun á umhverfi heyrnarskertra og hvernig þeir upplifa umhverfið öðruvísi en heyrendur. Þá var var tekið dæmi um hönnun lóðar á svæði Lýðháskólans í Ål í Noregi, en sá skóli er ætlaður heyrnarskertum, fjölskyldum þeirra og öðrum þeim sem nema vilja táknmálsfræði.
Skipta má verkefninu í fjóra hluta: Gagnaöflun, staðhætti, hugmyndavinnu og hönnunartillögu, en hönnunartillaga byggir á flokkum Patrik Grahns og tekur mið af þörfum heyrnarskertra. Vel gekk að hanna skólalóð og útivistarsvæði á rannsóknarsvæðinu með áherslu á þarfir heyrnarskerta og var það megin niðurstaða verkefnisins. Ennfremur þótti athyglisvert hve lítið hefur verið fjallað um heyrnarskerta og hvað þeir þarfnast og er því þörf á frekari rannsóknum á þessu sviði.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS_GísliRafn.pdf | 24.05 MB | Opinn | Skoða/Opna |