is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13259

Titill: 
  • „Að fara suður syðra.“ Hlutverk sagnamenningar frá örófi til endaloka árabátaaldarinnar í verstöðinni Grindavík
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er gert heildrænt sagnakort úr sögnum tengdum Grindvík fyrir vélvæðingu árabátaflotans. Sagnirnar sem notaðar voru í ritgerðinni eru að finna í helstu þjóðsagnasöfnum fyrir og eftir aldamótin 1900. Til ítarauka var kenningum fræðimanna bætt við sagnakortið auk sögulegra heimilda og þjóðháttalýsinga. Eitt af meginmarkmiðum ritgerðarinnar er að rannsaka hlutverk sagna einna og sér, og eins í heildrænu samhengi. Því til viðbótar er reynt að fylla í eyður „hins týnda samhengis“ og gert grein fyrir mögulegum aðstæðum sagnaflutnings.
    Líkur eru á að aðstæður til sagnaflutnings hafi skapast á ferðalaginu til og frá vertíðum því sagnirnar mynda nokkurs konar vörður í landslaginu. Því er komið inn á menningarvæðingu landslags í ritgerðinni og möguleika á samfelldri heimsmynd sem á sér birtingarmynd í formi sagnamenningar.
    Þar sem margar sagnirnar tengjast lífinu við opið úthafið er lögð áhersla á tengingu sagnamenningar og atvinnuhátta; í þessu tilfelli sjávarsóknar. Því er litið inn í verbúðir og störf tengd sjósókninni skoðuð. Með það fyrir augum að skoða mögulega þýðingu fyrir tilvist sagnanna; það er umhverfi og aðstæður fólks sem dró fram lífið við gjöfulan en óblíðan sjóinn.

Samþykkt: 
  • 5.10.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13259


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Að fara suður syðra - Hlutverk sagnamenningar frá örófi til endaloka árabátaaldarinnar í verstöðinni Grindavík.pdf879.19 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna