Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13414
Þessi ritgerð var unnin sem lokaverkefni til B.Ed. – prófs í grunnskólakennarafræðum frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Ritgerðin er rannsóknarritgerð og var gagna aflað úr fræðilegum heimildum. Tilgangur ritgerðarinnar er að kynnast kenningum leikritaskáldsins Bertolt Brecht og athuga hvort aðferðir hans samræmast á einhvern hátt, annars vegar aðalnámskrá og hins vegar markmiðum sérfræðinga á sviði leiklistar í skólastarfi. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að kenning Brecht um epíska leikhúsið á fullt erindi inn í kennslu grunnskólanema. Höfundi ritgerðarinnar tekst að sýna fram á tengsl Brecht við ákveðna þætti aðalnámskrár auk tengsla við markmið sérfræðinga í leiklist í skólastarfi. Þá vonast höfundur ennfremur til að umfjöllunin sé gagnleg og nýtist bæði leiklistarkennurum í grunnskólum landsins og áhugafólki um leiklist í skólastarfi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaskil.pdf | 517.46 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |