is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1345

Titill: 
  • Ávöxtun skulda- og hlutabréfa
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Verðbréfaviðskipti eru í eðli sínu áhættusöm vegna þess að ekki er
    hægt að vita nákvæmlega hver ávöxtun af hverju hluta- eða
    skuldabréfi verður þegar viðskiptin fara fram. Ástæða þess er að
    verðþróun verðbréfa er háð mörgum samverkandi þáttum. Helstu
    áhrifaþættir á verðþróun tengjast innra umhverfi fyrirtækisins sem
    og því efnahagsumhverfi sem það starfar innan. Framtíðarspá á
    ávöxtun af einstaka verðbréfi verður því erfið og ávallt er til staðar
    viss óvissa um þá ávöxtun sem kemur til með að verða af
    verðbréfinu eftir kaupin. Þessi óvissa er þó mismikil eftir því í
    hvers konar verðbréfi fjárfest er. Almennt eru hlutabréf áhættumeiri
    fjárfesting en skuldabréf og gera fjárfestar því hærri ávöxtunarkröfu
    til slíkrar fjárfestingar.
    Metið verður út frá sögulegum gögnum hvort hlutabréf sama
    fyrirtækis eða skuldabréf gefi af sér hærri ávöxtun yfir ákveðið
    tímabil. Verkefnið byggist á því að meta hvort fjárfestar séu þar af
    leiðandi betur staddir með því að kaupa hluta- eða skuldabréf
    viðkomandi fyrirtækis.
    Lykilorð
    • Skuldabréf
    • Hlutabréf
    • Ávöxtun
    • Áhætta
    • Samanburður

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2002
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1345


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ávöxtun skuldabréfa_e.pdf551.35 kBOpinnÁvöxtun - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Ávöxtun skuldabréfa_h.pdf103.64 kBOpinnÁvöxtun - heimildaskráPDFSkoða/Opna
Ávöxtun skuldabréfa_heild.pdf7.96 MBTakmarkaðurÁvöxtun - heildPDF
Ávöxtun skuldabréfa_u.pdf69.2 kBOpinnÁvöxtun - útdrátturPDFSkoða/Opna
Ávöxtun_tölvuviðaukar.pdf400.33 kBTakmarkaðurPDF