is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13530

Titill: 
  • „Ég sest til borðs eins og hver annar starfsmaður skólans.“ Samstarf grunnskóla og Þjónustumiðstöðvarinnar í Breiðholti
  • Titill er á ensku Collaboration between the compulsory schools and the municipal service center in Breiðholt
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Rannsókn þessi fjallar um samstarf á milli grunnskóla í Breiðholti og Þjónustumiðstöðvarinnar í Breiðholti. Sjónum er einna helst beint að jákvæðum þáttum samstarfsins, hvað megi betur fara og þátt félagsráðgjafans í þessu samstarfi. Enn fremur er horft á sérstöðu Breiðholtsins með hliðsjón af stöðu barna. Eigindlegri rannsóknaraðferð var beitt en tekin voru viðtöl við níu fagmenn, þar af fjóra frá þjónustumiðstöðinni og fimm frá grunnskólunum, sem reynslu höfðu af samstarfinu á milli þessara tveggja stofnana. Niðurstöðurnar leiða í ljós að samstarf á milli grunnskólanna og Þjónustumiðstöðvarinnar í Breiðholti er að mestu leyti mjög gott en takmörkuð úrræði, löng bið í greiningar og tímaskortur er helsta fyrirstaðan fyrir enn betra samstarfi. Þá virðist ekki vera nægilegur skilningur á milli fagstétta sem að samstarfinu koma og þeim verkefnum sem þær takast á við í starfi sínu. Félagsráðgjafinn horfir á heildina og tengir saman ólíkar stofnanir í lífi barna. Ljóst er að almennt eru næg verkefni fyrir félagsráðgjafa innan grunnskóla og mættu umsvif þeirra að vissu leyti vera meiri. Þá virðist sérstaða Breiðholtsins, með hliðsjón af stöðu barna, vera fjölþætt, en í hverfinu er mikið um félagslega erfiðleika miðað við önnur hverfi í Reykjavík og töluvert um fatlanir barna. Hins vegar státar hverfið af fleiri úrræðum en mörg önnur hverfi og reynt er að koma til móts við sérstöðu þess með ýmsu móti.

  • Útdráttur er á ensku

    The study examines the collaboration between compulsory schools in Breiðholt, Reykjavík, and the municipal service center in Breiðholt. Positive aspects of this collaboration and factors that can be improved are explored along with the role of the social worker. The uniqueness of Breiðholt, with regards to the children’s socio-economic situation is also taken into consideration. The research is based on qualitative research methodology. Nine professionals were interviewed, four from the municipal service center and five from the compulsory schools. All of them had experience of the collaboration between the two institutions. The findings show that the collaboration between the compulsory schools and the municipal service center in Breiðholt is mostly very good and the main obstacles against even better collaboration are lack of resources, long waiting lists for diagnosis of children’s disabilities and time constraints. Furthermore, there appears to be a lack of understanding between the professions involved in the collaboration, and the tasks each of them are faced with in their practice. The social workers role is to have an holistic view and connect different institutions in children’s lives. It is apparent that there are plenty of challenges for social workers to tackle within the educational system and that their involvement could be even more widespread. Social problems and childrens’s disabilities are common in Breiðholt compared to other areas in Reykjavík. On the other hand the area has more resources available than other areas in Reykjavík and therefore its uniqueness is met through a variety of solutions.

Samþykkt: 
  • 17.12.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13530


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
sædís.PDF1.58 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna