is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Rafræn tímarit >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13593

Titill: 
  • Þróun menntunar fyrir norræna grunnskólakennara : liggur leiðin í háskóla?
Útgáfa: 
  • Desember 2012
Útdráttur: 
  • Greint er frá samanburðarrannsókn á þróun í menntun norrænna grunnskólakennara og kannað hvort og á hvern hátt þróun á Íslandi er sambærileg þróuninni á öðrum Norðurlöndum. Kannað er hvort og á hvern hátt þróunin endurspeglar bóknámsrek, þ.e.a.s. hvort sú tilhneiging sé á Norðurlöndum að færa kennaramenntun í háskóla eða í stofnanir sem smám saman leitast við að haga starfsemi sinni á líkan hátt og gert er í háskólum. Sérstaklega er kannað hvernig bóknámsrek er tilkomið og hvernig það tengist menntapólitískum aðstæðum og uppbyggingu æðri menntunar í hverju landi. Niðurstöður leiða í ljós að einkum þrennt hefur áhrif á bóknámsrek. 1) Stjórnvöld breyta sýn sinni á menntun grunnskólakennara og telja að hún þurfi að verða fræðilegri og bóklegri en áður. 2)Stjórnvöld breyta menntakerfinu þannig að kerfið í heild eða að hluta til færist nær gildum og vinnubrögðum háskóla en það var áður.
    3)Einstaka stofnanir, sem ekki eru háskólar en mennta grunnskólakennara, geta sótt um og fengið virðingarstöðu háskóla að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þróunin endurspeglar mismikið bóknámsrek í löndunum fimm, m.a. kemur í ljós ólík þróun menntunar íslenskra og danskra grunnskólakennara. Menntun íslenskra grunnskólakennara flyst snemma í háskóla en menntun danskra grunnskólakennara fer fram í stofnunum sem eru ólíkastar háskólum
    miðað við önnur lönd Norðurlandanna. Nánari greining bendir til þess að landfræðilegar og menningarlegar aðstæður hafi haft áhrif á þróun menntunar grunnskólakennara í Danmörku og á Íslandi.

  • Útdráttur er á ensku

    A comparative study on the development of the education of Nordic primary school teachers is introduced. The question is explored as to whether the development of this teacher education in Iceland is similar to other Nordic countries,and whether this development reflects academic drift. In example: Is there a Nordic tendency to transfer teacher education to universities or institutions that gradually become more similar to universities? In particular, how academic drift emerges and how it relates to the educational and political context is explored, as is the organization of higher education in each country. The results show that academic drift is influenced in three ways: 1) State authorities change their views on the education of primary school teachers, believing it has to become more theoretical and academic. 2) These authorities move the educational system closer to the universities’ values and academic working conditions. 3) Individual, non-university institutions educating primary school teachers apply for and receive university status, partly or in full. Academic drift was detected in all countries but occured everywhere at a different pace. A considerable difference was found between Icelandic and Danish development: the Icelandic education was transferred to the university in 1971, whereas Danish education remains within institutions that are unlike universities in the other Nordic countries. Further analyses indicate that this difference is related to geo-political and cultural differences between the countries.

Birtist í: 
  • Netla
ISSN: 
  • 1670-0244
Athugasemdir: 
  • Athugasemdir er á óskilgreindu tungumáli Greinaflokkur um kennaramenntun til heiðurs Ólafi J. Proppé sjötugum á tíu ára afmæli Netlu – Veftímarits um uppeldi og menntun
Samþykkt: 
  • 7.1.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13593


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
013.pdf347.5 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna