Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13610
Í greininni er fjallað um starfendarannsókn sem fram fór í einum leikskóla á
höfuðborgarsvæðinu. Tveir kennarar tóku þátt í rannsókninni í samstarfi við
rannsakendur við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Markmiðið var að þróa vinnu
með tengsl leiks og læsis og fylgjast með hvernig hugmyndir um tengsl leiks og
náms þróuðust hjá kennurunum meðan á starfendarannsókninni stóð. Þróun
hugmynda og starfsaðferða kennaranna var skráð með fjölbreyttum aðferðum:
myndböndum, ljósmyndum, athugunum, viðtölum, fundargerðum, og í dagbækur.
Niðurstöður benda til þess að þátttaka í starfendarannsókninni hafi haft áhrif á
starfsaðferðir og hugmyndir kennaranna. Þeir urðu meðvitaðri um gildi leiks fyrir
nám barna og hvernig leikir gátu skapað aðstæður og stutt við nám barnanna.
Kennararnir breyttu aftur á móti ekki eða slepptu tökum á þeim leiðum sem þeir
höfðu áður tileinkað sér við þjálfun læsis í skipulögðum stundum.
The article describes a collaborative action research project conducted in one
preschool in the Reykjavik metropolitan area. The participants were two teachers
who collaborated with researchers at the University of Iceland. The aim of the
study was to develop a pedagogy where play and literacy were integrated and
observe how the teachers’ ideas about the integration of play and learning
developed during the action research period. The changes were documented
throughout the study period with various methods such as videos, photos,
interviews, observations, notes from meetings, documents and diaries. The
findings indicate that participation in the action research influenced the teachers’
practices and ideas. They became more aware of the value of play for children‘s
learning and of ways in which they could create conditions and support
children‘s learning through play. They did not, however, change or let go of the
former practices in which they worked on literacy during specific well-defined
periods.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
007.pdf | 354.61 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |