is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13761

Titill: 
  • Sjávarhjallar frá síðjökultíma við Hólakot í Hrunamannahreppi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Efnisorð: 
Útdráttur: 
  • Malarnáma við bæinn Hólakot í Hrunamannahreppi var könnuð og jarðlög í námunni kortlögð og túlku í ljósi setmyndunarumhverfis. Jökulhörfun á Íslandi hófst fyrir um 14.000 árum síðan og samhliða hörfuninni hækkaði sjávarmálið við strendur Íslands hratt. Búðagarðar sýna jökuljaðarinn á Yngra Dryas og Preboreal og benda fyrri rannsóknir til að efstu fjörumörk hafi verið 60-75 metrar bæði fyrir og eftir þá miklu jöklun sem myndaði Búðagarðanna. Tilgangur þessa verkefnis var að finna út uppruna setlaga sem finna mátti í Hólakotsnámu. Ýmsar aðferðir voru notaðar til að komast til botns í því. Þar á meðal voru gerðar kornastærðargreiningar á sýnum úr jarðlögum, hallastefna jarðlaga mæld og bergtegundir í setinu greindar. Niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að jarðlögin í námunni væru líklegast forn sjávarmyndun frá Yngra Dryas - Preboreal. Haföldur og straumar hafi líklegast myndað lónarif út frá Langholtsfjalli og Skarðsfjalli með bergbrotum úr fjöllunum í kring og eldra seti á láglendinu. Í þessu verkefni er reynt að rekja þá atburðarás sem leiddi til myndunar þessara setlaga.

  • Útdráttur er á ensku

    A gravel mine at the Hólakot farm in Hrunamannahreppur was studied and strata in the mine was mapped and interpreted considering the sedimentation environment. Glacial retreat in Iceland began about 14.000 years ago and sea level raised parallel to the retreat. Búði moraine show the glacier margin on Younger Dryas and Preboreal and previous researches show that the highest sea level was about 60-75 meters a.s.l. both before and after the glaciation which formed the Búði moraine. The purpose of this project is to find the origin of the sediment which was outcropped in the Hólakot mine. Various methods were used to find that out. For example, partical size analysis was made on some samples, slope dircetion of the sediment layers was measured and various types of rocks were analysed. Conclusions of this research is that the sediment in the mine are problaby an ancient marine formation from Younger Dryas - Preboreal. Sea currents formed barrier reef which stretched from Langholtsfjall and Skarðsfjall with rock fractures from the mountains around the area and older sediment from the lowlands. The goal with this paper is to follow the course of events which formed the sediment in Hólakot mine.

Samþykkt: 
  • 14.1.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13761


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ragnar_Sigurdarson_BS_ritgerd2013.pdf3.42 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna