is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13770

Titill: 
  • Staðgöngumæðrun á Íslandi: Opinber umræða, lagasmíð og ólík sjónarmið
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Staðgöngumæðrun, að kona gangi með barn fyrir aðra, er ólögleg og umdeild á Íslandi. Árið 2010 var lögð fram þingsályktunartillaga um að heimila staðgöngumæðrun og í janúar 2013 var stofnaður vinnuhópur sem á að smíða lagafrumvarp. Markmið þessarar rannsóknar er að skrá sögu málsins, kortleggja umræðuna og þátttakendur, safna saman grunnupplýsingum um stöðuna á Íslandi og draga þannig fram heildarmynd málsins. Rannsóknin er eigindleg, framkvæmd á tímabilinu 2010-2012 með heimildavinnu, viðtölum og þátttökuathugun. Fylgst var með umræðu á opinberum vettvangi. Þeir sem eru jákvæðir til staðgöngumæðrunar vilja heimila hana á grundvelli þess að framkvæmdin sé læknisfræðileg aðstoð við ófrjósemi. Það eru t.d. félagar Staðgöngu, læknar og þingmenn. Efasemdamenn hafa áhyggjur af mannréttindum staðgöngumæðra og barnsins. Siðfræðingar, lögfræðingar og kirkjan eru áberandi í þeim hópi sem og femínistar og fleiri sem eru alfarið á móti lögleiðingu. Þeir óttast að mannhelgi kvenna og réttindi muni skerðast verulega og konur verði notaðar sem tæki fyrir aðra. Þá telja femínistar að lögleiðing muni hafa í för með sér óeðlilegan þrýsting á konur til að gerast staðgöngumæður. Mörgum spurningum og álitamálum er ósvarað, t.d. varðandi líðan og réttindi barnsins, sálarlíf kvenna sem gerast staðgöngumæður og hvernig er hægt að tryggja farsæla aðkomu allra að málinu. Ljóst er að frekari rannsókna er þörf.

  • Útdráttur er á ensku

    Surrogacy, when a woman carries a baby for someone else, is illegal and debated in Iceland. In 2010 a Parliament proposal to legalise it was revealed and in january 2013 a group was formed to draft a bill. The research goal is to list the history of the subject, map out the discussion and participants, gather basic knowledge of the matter in Iceland and by these means draw out the big picture. It is a qualitative ethnographic research conducted from 2010 to 2012 with both reading of other studies and taking interviews and participating in open meetings on the matter.Main opinions in the Icelandic discussion are; positive, those who want to legalise surrogacy on medical grounds as a cure for infertility. Here we have e.g. members of Staðganga, doctors and members of the parliament. The doubtful opinion, where ethics, lawyers and the church are prominent, is based on concers about human rights of the surrogate and the baby. The negative opinion, where feminists and others are prominent, belives that the surrogates and the baby's rights will be seriously affected and that women will be considered a tool for others. They belive that legalising will create a unnatural pressure on women. Many questions and conflicts have not been answered, e.g. the question of the rights, wellbeing and feelings of the babies as well as those of the surrogates, and how a happy outcome for all participants can be guaranteed. It is clear that further research is needed.

Samþykkt: 
  • 15.1.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13770


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MA_HF_SKIL_PDF.pdf1.51 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna