is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Rafræn tímarit >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13788

Titill: 
  • Gæði eða geymsla? : um frístundaheimili og skóladagvistun fyrir 6–9 ára börn á Íslandi
Útgáfa: 
  • Júní 2011
Útdráttur: 
  • Í flestum vestrænum löndum býðst foreldrum að skrá börn sín í lengda viðveru eða
    á frístundaheimili að loknum hefðbundnum skóladegi og þar til foreldrar ljúka
    vinnu. Mismunandi er hvaða kröfur eru gerðar til slíkrar starfsemi og víða hamla
    aðbúnaður og starfskjör eðlilegri fagþróun starfsins. Hér á landi hafa ekki verið sett
    sérstök lög um slíka starfsemi en þó er samkvæmt grunnskólalögum heimilt að
    bjóða upp á lengda viðveru og raunar gert ráð fyrir að í hverjum skóla sé
    nemendum boðið skipulagt félags- og tómstundastarf. Nýleg könnun Sambands
    íslenskra sveitarfélaga sýnir að lengd viðvera er í einhverju formi í 75% sveitar-
    félaga hér á landi. Ólík viðmið eru um barnafjölda, menntun starfsmanna og
    þjónustustig. Í Reykjavík hefur þjónustan flakkað á milli ólíkra sviða borgarinnar,
    en nýlega var tekin ákvörðun um að sameina yfirstjórn skóla og frístundaheimila.
    Starfsemi frístundaheimila og lengdrar viðveru myndi styrkjast ef sveitarfélög og
    ríki sameinast um markmið og setja viðmið um rekstur og fagmennsku starfsins.

Birtist í: 
  • Netla
ISSN: 
  • 1670-0244
Samþykkt: 
  • 15.1.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13788


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
003.pdf276.62 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna