is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13819

Titill: 
  • Davidson og andsvar hans við víðtækri efahyggju
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er fjallað um andsvar bandaríska heimspekingsins Donald Davidson við víðtækri efahyggju og tengsl þess við aðra hluta heimspeki hans. Andsvar þetta kemur víða fram í skrifum hans og sprettur upp úr frumlegri greinargerð hans fyrir sambandi máls, hugsunar og heims. Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á þessa greinargerð, sem sameinar þrjár hugmyndir sem liggja heimspeki Davidson til grundvallar: túlkun frá rótum, heildarhyggju og úthyggju.
    Í þessu augnamiði verður jafnframt gerð grein fyrir gagnrýnni umfjöllun Ludwig og Lepore um andsvar Davidson. Ekki verður gerð tilraun til að svara gagnrýni þeirra í heild sinni, en í lok ritgerðarinnar verður fært rök fyrir því að túlkun Ludwig og Lepore líti að miklu leyti framhjá þeim sögulega þætti sem finna má í úthyggju Davidson, sem síðan hefur afdrifaríkar afleiðingar fyrir það hvernig þeir meta andsvar hans við efahyggju, sem og heimspeki hans í heild sinni.

Samþykkt: 
  • 21.1.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13819


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Stefan Jokulsson(loka m titilogforsidu).pdf463.18 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna