is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13871

Titill: 
  • Vörumerkjastjórnun - Sælkerafiskur
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Verkefnið fjallar um vörumerkjastjórnun og vörumerkið Sælkerafiskur. Sælkerafiskur er einkaleyfisvarið vörumerki í eigu heildsölunnar Sælkerinn ehf. og kom fyrst á markað í verslunum Hagkaupa árið 2009. Undir merkjum Sælkerafisks er seldur frosinn skelfiskur, túnfiskur og smokkfiskur í matvöruverslunum. Á þeim tíma sem vörumerkið hefur verið á markaði hefur vöruúrval aukist, sölustöðum fjölgað og samkeppni aukist.
    Í verkefninu er uppbygging vörumerkisins skoðuð og aðferðir við stjórnun þess. Unnið er út frá aðferðafræði stefnumiðaðrar vörumerkjastjórnunar og CBBE líkaninu (e. customer-based brand equity model). Líkanið nær yfir uppbyggingu, stjórnun og mælingu vörumerkjavirðis. Vörumerkjaeinkenni (e. brand elements) vörumerkisins, nafn, merki og slagorð eru tekin til athugunar út frá fræðunum. Áhersla er lögð á mikilvægi markaðsáætlana og samhæfingar markaðsaðgerða.
    Könnun var gerð á meðal nemenda Háskólans á Akureyri til að kanna hvort þeir hafi þekkingu á vörumerkinu og hvaða þættir skipta þá mestu máli við val á frosnum skelfiski. Einnig var kannað hvort þeir þátttakendur sem oftast versla í verslunum Bónus þekki vörumerkið.
    Að lokinni greiningu á vörumerkinu og niðurstöðum könnunarinnar eru settar fram tillögur að uppbyggingu vörumerkisins og til að auka vörumerkjaþekkingu og vörumerkjavirði Sælkerafisks.
    Lykilorð: Vörumerkjastjórnun, vörumerkjavirði, CBBE líkanið, vörumerkjaeinkenni og Sælkerafiskur.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað til 1.1.2060
Samþykkt: 
  • 28.1.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13871


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Efnisyfirlit.pdf176.93 kBLokaður til...01.01.2060EfnisyfirlitPDF
Lokaverkefni.pdf1.25 MBLokaður til...01.01.2060HeildartextiPDF
Heimildaskrá.pdf90.88 kBLokaður til...01.01.2060HeimildaskráPDF
Viðaukar.pdf433.49 kBLokaður til...01.01.2060ViðaukiPDF