is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1391

Titill: 
  • Greining á stefnumörkun Sparisjóðs Vestfirðinga
Námsstig: 
  • Bakkalár
Höfundur: 
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Hvernig fellur ferli stefnumörkunar Sparisjóðs Vestfirðinga að forsendum viðkenndra stefnumótunarfræða og hvaða árangri skilar sú stefnumótunarvinna fyrirtækinu? Þessa spurningu setti höfundur fram til grundvallar uppbyggingar verkefnisins.
    Höfundur fór í greiningarvinnu með aðstoð stjórnar SPVF sem og tengiliðum hans við fyrirtækið. Til viðmiðunar auk annarra fræðilegra heimilda var mikið stuðst við aðferðafræði úr bókinni Crafting and Executing Strategy eftir Arthur A. Thompson Jr. & A. J. Strickland, en bók þeirra félaga er ein af mest lesnu kennslubókum um stefnumótun í heiminum í dag. Farið var yfir fræðilegt ferli stefnumótunar og það borið saman við stefnumörkun SPVF.
    Mikil og jákvæð vakning hefur átt sér stað á mikilvægi stefnumótunar og hafa aðferðir um samhæft árangursmat haft mikið að segja í þeirri umræðu, en rétt er að geta þess að uppskera verður aldrei meiri en sáð er til.
    Það er auðvelt að festast í viðjum vanans og ganga út frá því að sá grunnur sem fyrirtæki byggir á standist óbreyttur þrátt fyrir þær breytingar sem eru í umhverfinu og eiga eftir að verða. Það er hinsvegar í höndum stjórnenda SPVF að meta hvert og hvernig eigi að stefna með reksturinn. Með virku stefnumótunarferli er hægt að vinna markvisst að því að svara spurningum
    um það hvernig fyrirtækið er í dag og hvert það vill stefna í framtíðinni.
    Lykilorð: Stefnumótun, hlutverk, framtíðarsýn, markmið, niðurstaða.

Samþykkt: 
  • 1.1.2005
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1391


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Greining á stefnumörkun SPV_e.pdf168.26 kBOpinnSparisjVest - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Greining á stefnumörkun SPV_h.pdf110.85 kBOpinnSparisjVest - heimildaskráPDFSkoða/Opna
Greining á stefnumörkun SPV_heild.pdf6.06 MBOpinnSparisjVest - heildPDFSkoða/Opna
Greining á stefnumörkun SPV_u.pdf81.28 kBOpinnSparisjVest - útdrátturPDFSkoða/Opna