Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1392
Miklar breytingar í innra og ytra umhverfi fyrirtækja kalla á stöðuga stjórnun
breytinga. Markmiðið með verkefninu er að sýna yfirmönnum fyrirtækja fram
á mikilvægi þess að stjórna breytingum á markvissan hátt, svo hægt sé að
forðast neikvæð viðbrögð og andstöðu starfsfólks.
Hægt er að skipta skipulagsbreytingum, sem gerðar eru innan fyrirtækja í tvo
flokka: stigvaxandi og róttækar. Samruni er róttæk breyting sem hefur mikil
áhrif á starfsfólk. Rannsóknir sýna að breytingar eru mun líklegri til að ganga
eftir og heppnast ef starfsfólki er gert kleift að taka þátt í breytingaferlinu frá
byrjun og vera með í skipulagningu og framkvæmd. Breytingaferli byggist á
að afþýða núverandi ástand, breyta því og að lokum frysta ástandið aftur.
Gerð er tilviksrannsókn í Grófargili ehf., bókhaldsfyrirtæki á Akureyri. Gott
hefði verið fyrir stjórnendur Grófargils ehf. og Fjárstoðar ehf. að mynda teymi
þar sem starfsfólk hefðu unnið saman að samruna og stefnumótun nýs
fyrirtækis. Það hefði komið í veg fyrir óvissu og ótta starfsfólks við
fyrirhugaðar breytingar. Það er mjög mikilvægur þáttur að hafa samráð við
starfsfólk, upplýsa það og hafa með í samrunaferli, en þó er það ekki eitt og
sér lykillinn að vel heppnaðri sameiningu.
Lykilhugtök eru: skipulagsbreyting, stjórnun, menning, starfsmaður og hegðun.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Stjórnun breytinga_e.pdf | 125.85 kB | Opinn | Stjórnun breytinga - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Stjórnun breytinga_h.pdf | 104.53 kB | Opinn | Stjórnun breytinga - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
Stjórnun breytinga_heild.pdf | 774.31 kB | Takmarkaður | Stjórnun breytinga - heild | ||
Stjórnun breytinga_u.pdf | 78.31 kB | Opinn | Stjórnun breytinga - útdráttur | Skoða/Opna |