Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13948
Skimunarlistar eru mjög hentug leið til að flýta fyrir að börn sem þurfi á því að halda fái viðeigandi greiningu og nauðsynleg inngrip. Skimun og meðferðarúrræði verða að haldast í hendur, því endanlegur tilgangur skimunar er að koma börnum snemma í meðferð og þjálfun. Skimunartæki bera ekki alltaf kennsl á þau börn sem sýna væg einkenni, sem veldur því að vandamál þessara barna eru oft ógreind lengi.
CARS2 er ný útgáfa á mælitækinu CARS sem hefur verið mikið notað hérlendis. CARS2-HF er ætlað að ná til hærra standandi einstaklinga á einhverfurófinu. CARS2 hefur reynst bæði áreiðanlegt og réttmætt í því að bera kennsl á vægara, óljósari einkenni einstaklinga á einhverfurófinu. Mælitækið hefur nú verið þýtt yfir á íslensku í von um innleiðingu þess á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans.
Markmiðið rannsóknarinnar var að skoða próffræðilega eiginleika CARS2, kanna samræmi matsmanna, og bera CARS2 saman við önnur skimunartæki.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ritgerð - Birta&Thelma.pdf | 1.1 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |