is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13992

Titill: 
  • Áhrif alkóhólisma foreldra og forráðaaðila á börn þeirra
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Aukning hefur verið á notkun áfengis hér á landi eins og öðrum vesturlöndum, en samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni(WHO) er notkun áfengis þriðji stærsti áhættuþáttur slæmrar heilsu einstaklinga á heimsvísu. Sumir sem neyta áfengis þróa með sér sjúkdóminn alkóhólisma en hann er talin hafa afdrifarík áhrif á einstaklinginn sjálfan, auk nánustu fjölskyldu hans.
    Tilgangur þessarar fræðilegu úttektar var að skoða hvort og hvaða áhrif það getur haft á börn og unglinga að alast upp við alkóhólisma. Úrræði fyrir börn alkóhólista voru skoðuð hérlendis og annars staðar. Einnig var skoðað hvað hjúkrunarfræðingar geta gert til að leggja þessum börnum lið.
    Niðurstöður samanburðarannsókna á börnum alkóhólista sýna aukna hættu á vandamálum tengdum þroska, námsgetu, hegðun, tilfinningalegum og andlegum þáttum. Þau geta átt erfiðara með að tengjast sterkum vinaböndum og síðar meir að stofna til ástarsambanda. Einnig eru þau talin eigi erfiðara með að þróa með sér sjálfstjórn en fylgni er talin vera milli góðrar sjálfstjórnar og jákvæðs þroska. Sum börn virðast þróa með sér vissa seiglu til að takast á við aukið álag án þess að brotna undan. Það á ekki við öll börn og er því nausynlegt að bregðast við snemma og hjálpa þeim að mynda með sér einhverskonar vörn gegn hættunni.
    Lykilorð: Alkóhólismi, alkóhólisti, börn, þroski, seigla.

  • Útdráttur er á ensku

    According to the World Health Organisation, alcohol consumption in Iceland and other western countries has increased and is now considered the third major influence on poor health of individuals worldwide. Number of individuals who consume alcohol can develop alcoholism which is considered to have dramatic influence on the individual and the people around him.
    The purpose of this thesis was to explore whether and how exposure to alcoholism can influence children’s development. Possible solutions in Iceland and other countries for children exposed to parental alcoholism were examined as well as useful methods nurses can assist and support these children were identified.
    Comparison research outcomes on children exposed to parental alcoholism show in-creased risk for these children developing problems associated with development, learning abilities, behavior in addition to emotional and psychological health of the individual. Children exposed to parental alcoholism may find it more difficult to bond with others and build romantic relationship later in life. They are also less likely to achieve acceptable self-control which is considered linked to positive development. Some children seem to develop a kind of resilience to be able to deal with increased pressure without giving in. Sadly this does not include all children and therefore it is vital to react early and help these children build up de-fences against countering the risk.
    Keywords: Alcoholism, alcoholic, children, development, resilience.

Samþykkt: 
  • 10.2.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13992


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaverkefni08_feb2013lokaloka.pdf363.28 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna