Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14059
Þessi ritgerð er lokaverkefni höfundar til B.Ed prófs í grunnskólakennarafræðum á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Yfirskrift verkefnisins er Litafræði fyrir yngsta stig grunnskóla: Kennarahandbók.
Handbókin inniheldur umfjöllun um myndmenntakennslu í grunnskóla, skólastefnuna skóli án aðgreiningar og kennarahandbók sem ætlað er að kenna yngsta stigi grunnskólans litafræði.
Markmið handbókarinnar er að kenna nemendum helstu þætti litafræðinnar en þó á mismunandi hátt til að koma til móts við mismunandi þroskastig nemenda. Við gerð handbókarinnar tók ég tillit til skólastefnunnar skóli án aðgreiningar. Skóli án aðgreiningar metur þarfir og getu hvers nemanda fyrir sig og skipuleggur námið samkvæmt því. Verkefnin eru því fjölbreytt og misþung til að öllum nemendum sé fært að leysa þau. Frekar verður fjallað um skóla án aðgreiningar í kafla 3.
Í handbókinni er efninu miðlað til nemenda bæði í formi mynda, smáfyrirlestra, tilrauna og frásagna. Flest verkefnin eru ætluð læsum nemendum en jafnframt eru í handbókinni verkefni fyrir nemendur sem eru ólæsir. Verkefnin voru mótuð með hliðsjón af aðalnámskrá grunnskóla.
Í ritgerðinni er litafræðinni einnig gerð skil, fjallað um skólastefnuna skóli án aðgreiningar, mikilvægi fjölbreyttra kennsluaðferða og verkefna og fagmiðun í myndmenntakennslu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinargerðin.pdf | 631.62 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Handbók í litafræði.pdf | 709.36 kB | Lokaður til...01.01.2060 | Kennarahandbók | ||
Litarugl 1.3.pdf | 48.22 kB | Lokaður til...01.01.2060 | Fylgiskjöl | ||
litakrossgáta 1.4.pdf | 85.34 kB | Lokaður til...01.01.2060 | Fylgiskjöl | ||
3.2 Picasso-Guernica.jpg | 100.94 kB | Lokaður til...01.01.2060 | Fylgiskjöl | JPG | |
Litasýn dýra 4.2.pdf | 129.25 kB | Lokaður til...01.01.2060 | Fylgiskjöl | ||
Hestur 5.2.jpg | 734.73 kB | Lokaður til...01.01.2060 | Fylgiskjöl | JPG | |
kind 5.3.jpg | 682.36 kB | Lokaður til...01.01.2060 | Fylgiskjöl | JPG | |
Litir og litbrigði hesta 5.4.pdf | 4.82 MB | Lokaður til...01.01.2060 | Fylgiskjöl | ||
5.5 Litir og litbrigði kindar.pdf | 256.29 kB | Lokaður til...01.01.2060 | Fylgiskjöl | ||
grænt grænt grænt 6.1.pdf | 233.47 kB | Lokaður til...01.01.2060 | Fylgiskjöl | ||
Litaskífa 1.2.pdf | 174.88 kB | Lokaður til...01.01.2060 | Fylgiskjöl |