Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1405
Í þessari skýrslu er því svarað hvort að hagkvæmt er að kaupa eða leigja
fraktflugvél til að flytja úr ferskan fisk frá Egilsstöðum. Allt frá því að
útflutningur á ferskum fiskflökum hófst hér á landi í lok 8. áratugarins hefur
hann aukist nánast stöðugt frá ári til árs. Útflutningur á ferskum fiski er hluti af
almennari þróun sem á sér nú stað um allan heim. Aukin eftirspurn eftir
ferskum matvælum er ekki bundin við sjávarafurðir heldur á jafnt við um
grænmeti og aðrar landbúnaðarvörur. Í dag er ferskum fiski keyrt frá
Austurlandi til Keflavíkur og flogið út með hann þaðan, þetta kallar á aukið
álag á þjóðvegi landsins með tilheyrandi slysahættu og kostnaði. Í skýrslunni er
farið yfir þau fjárhagslegu hugtök sem höfundur notar og lagt er mat á það
hvað útkoman úr hugtökunum segir fyrir arðsemi verkefnisins. Einnig er sett
fram áætlun um stofnkostnað, þ.e.a.s. þann kostnað sem til fellur áður en
viðskiptahugmyndinni er hrint í framkvæmd. Þá er sett fram raunhæf
rekstraráætlun fyrir viðskiptahugmyndina, sem varpar ljósi á vænta
fjárhagsafkomu fyrirtækisins. Að lokum er gerð grein fyrir því hversu mikið
fjármagn fyrirtækið þarf miðað við þær forsendur sem gengið er út frá í
áætluninni og hvernig ætlunin er að útvega það.
Helsta niðurstaða skýrslunnar er sú að verkefninu um flugvélakaup er hafnað
vegna þess að NPV, IRR og MIRR eru öll neikvæð, NPV er neikvætt um
135,878,842 kr og IRR er neikvætt um tæp 9% og að lokum er MIRR neikvætt
um tæp 4% sem þýðir að arðsemi fjárfestingarinnar er minni en kostnaður
hennar. Hins vegar samþykkir höfundur verkefnið um flugvélaleiguna þar sem
NPV er jákvætt um 783.401.115 kr og IRR er tæp 138% sem þýðir að
fjárfestingin eykur verðgildi sitt um 138% og MIRR er einnig jákvætt um 42 %
sem þýðir að hagnaðurinn má minnka um 42 % áður en fjárfestingin verður
óarðbær. Einnig skilar verkefnið um flugvélaleigu hagnaði upp á 55.995.616 kr
á fyrsta ári og handbært fé í lok fyrsta árs er 62.539.379 kr. þetta eru gríðarlega
arðbærar niðurstöður, en þær eru háðar því að það sé hægt að nýta vélina báðar
leiðir.
Lykilorð: Flugvélakaup, flugvélaleiga, útflutningur, áætlanagerð,.
vöruskemma.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ferskfiskútflutningur með flugi frá Egilstöðum.pdf | 454.42 kB | Takmarkaður | Ferskútflutningur - heild | ||
Ferskfiskútflutningur_e.pdf | 179.71 kB | Opinn | Ferskútflutningur - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Ferskfiskútflutningur_h.pdf | 154.84 kB | Opinn | Ferskútflutningur - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
Ferskfiskútflutningur_u.pdf | 129.4 kB | Opinn | Ferskútflutningur - útdráttur | Skoða/Opna |