Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14060
Í ritgerð þessari Margur er klár – kennsla í íslensku á unglingastigi með hliðsjón af fjölgreindakenningunni er reynt að beina sjónum að því hvernig flétta megi fjölgreindakennigu Howards Gardners inn í kennslu íslensku á unglingastigi grunnskóla. Árið 1983 setti Howard Gardner prófessor við Harvad háskóla í Bandaríkjunum fram kenningu um sjö gerðir greinda mannshugans. Menn höfðu fram að því mælt greind með stöðluðu prófi og sett niðurstöðurnar fram í einni greinarvísitölu (IQ). Kenning Gardners mótmælir þeirri nálgun og er ætluð til þess að víkka út skilning okkar á mannshuganum. Gardner bætti svo áttundu greindinni við og vinnur að þeirri níundu. Menntamenn um allan heim hafa tekið kenningunni fagnandi, og víða má finna skóla sem kenna í anda fjölgreinndakenningarinnar. Hér verður fjallað um hvernig nálgast má íslenskukennslu á unglingastigi út frá kenningunni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
B.Ed.verkefni_thd6.pdf | 664.01 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |